Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Rask vegna framkvæmda á Landakoti

2. júlí 2026

Landspítali hefur undanfarin ár unnið að umfangsmiklu viðhaldi og endurbótum á húsnæði Landakots, bæði utanhússviðgerðum síðustu árin og svo voru tvær legudeildir í K-álmu endurnýjaðar á árunum 2020 til 2022. Nú er komið að endurnýjun á legudeildum í L-álmu og er undirbúningur þegar hafinn.

Undanfarna mánuði hefur farið fram ítarleg úttekt á húsnæðinu til að kortleggja nauðsynlegar endurbætur. Á nokkrum stöðum hafa fundist rakaskemmdir í byggingarefni og hefur þegar verið ráðist í viðgerðir þar sem þörf hefur verið á.

Markmið framkvæmdanna er að bæta aðstöðu sjúklinga og starfsfólks, tryggja öryggi húsnæðisins og skapa umhverfi sem uppfyllir nútímakröfur heilbrigðisþjónustu.

Framkvæmdirnar munu því miður hafa í för með sér tímabundið rask og hávaða á ákveðnum svæðum. Unnið verður markvisst að því að lágmarka áhrif á starfsemi og dvöl sjúklinga og aðstandenda, auk þess sem reglulega verður upplýst um stöðu og framgang verkefnisins.

Við biðjum sjúklinga, aðstandendur og aðra gesti Landakots velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdunum kunna að fylgja og þökkum fyrir skilning og þolinmæði á meðan á þessum mikilvægu umbótum stendur.

Þar sem heildarverkefnið er ærið er ljóst að heildarframkvæmdatími verður mældur í árum en ekki vikum.

Að framkvæmdum loknum munu deildir í L-álmu bjóða upp á nútímalegra, öruggara og betra umhverfi fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk.