Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Rafskútuslysum fækkar verulega en áfengi enn stór áhættuþáttur

4. nóvember 2026

Áfengi og önnur vímuefni koma við sögu í um þriðjungi slysa meðal 17 ára og eldri.

Rafskútuslysum sem leiða til komu á bráðamóttöku Landspítala hefur fækkað verulega á undanförnum árum, þrátt fyrir aukna notkun rafskútna á höfuðborgarsvæðinu. Fækkunin er sérstaklega áberandi meðal barna og ungmenna. Áfengi og önnur vímuefni koma þó enn við sögu í um þriðjungi slysa meðal 17 ára og eldri og meirihluti þeirra sem slasast þarf frekari heilbrigðisþjónustu vegna áverkanna. 

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn lækna á bráðamóttöku Landspítala sem birtist í Læknablaðinu. Rannsóknin náði til allra þeirra 513 einstaklinga sem leituðu á bráðamóttökuna vegna rafskútuslysa yfir sumarmánuðina árin 2023, 2024 og 2025. 

Sumarið 2023 leituðu 232 einstaklingar á bráðamóttöku vegna rafskútuslysa, en þeim hafði fækkað í 135 sumarið 2025. Það jafngildir um 42% fækkun á tímabilinu. Að meðaltali fækkaði komum úr 2,52 á dag í 1,47. 

Slysum meðal barna fækkar um meira en helming 

Fækkunin er sérstaklega áberandi meðal barna og ungmenna yngri en 18 ára. Komum þeirra á bráðamóttöku vegna rafskútuslysa fækkaði úr 64 sumarið 2023 í 27 sumarið 2025. Meðal barna 12 ára og yngri fækkaði komum úr 25 í sjö á sama tímabili. 

Rannsakendur telja niðurstöðurnar benda til þess að fræðsla og forvarnir gegn rafskútuslysum séu að skila árangri. Í júlí 2024 tóku gildi breytingar á umferðarlögum sem meðal annars bönnuðu börnum yngri en 13 ára að nota rafskútur. 

Þriðjungur undir áhrifum áfengis eða vímuefna 

Þrátt fyrir fækkun slysa er áfengis- og vímuefnaneysla áfram verulegt áhyggjuefni. Alls gáfu 34% slasaðra 17 ára og eldri upp að hafa verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar slysið varð. Hlutfallið breyttist lítið milli ára. 

Slysin voru einnig mun algengari um helgar en á virkum dögum. Um helmingur þeirra sem slösuðust á laugardögum og sunnudögum og voru spurðir um vímuefnaneyslu reyndist hafa verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. 

Alvarlegir áverkar og ítrekuð þörf fyrir heilbrigðisþjónustu 

Niðurstöðurnar sýna jafnframt að afleiðingar rafskútuslysa geta verið alvarlegar. Um 43% þeirra sem leituðu á bráðamóttökuna hlutu beinbrot eða liðhlaup og 32% hlutu áverka á höfði eða andliti. 

Alls þurftu 40 einstaklingar að gangast undir skurðaðgerð vegna áverkanna og 27 þurftu að dvelja á sjúkrahúsi í að minnsta kosti 12 klukkustundir. Rúmlega helmingur slasaðra, eða 53%, þurfti að leita tvisvar eða oftar til heilbrigðiskerfisins vegna slyssins. 

Athygli vekur einnig að aðeins 16% þeirra sem slösuðust voru með hjálm þegar slysið varð. 

Mikilvægt að halda áfram forvörnum 

Rannsakendur telja að árangur hafi náðst í að draga úr rafskútuslysum, meðal annars með aukinni fræðslu, forvörnum og breytingum á regluverki. Þeir leggja þó áherslu á að slysatíðnin sé enn umtalsverð og að áfram þurfi að vinna markvisst að því að fækka slysum. Telja rannsakendur líklegt að ef aukið yrði á framboð á rafmagnshjólum til leigu í staðinn fyrir rafskútur sé hægt að ná sama árangri í vistvænum samgöngum en með mun minni slysatíðni.

Rannsóknin var unnin af Hjalta Má Björnssyni, Helgu Margréti Þorsteinsdóttur, Dagbjörtu Guðbrandsdóttur og Þórði Líndal Þórssyni, læknum á bráðamóttöku Landspítala.