Ráðherrar heimsóttu Landspítala
9. september 2026
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra heimsóttu Landspítala í upphafi vikunnar.

Kristrún og Alma fengu skoðunarferð um skurðstofur spítalans og nýja bráðamatsdeild sem opnuð verður innan skamms. Deildin, sem er hluti af stöðugum umbótum spítalans á sviði bráðaþjónustu, mun sinna sjúklingum með bráð veikindi tengd lyflækningum sem þurfa umfangsmeira mat, rannsóknir og meðferð í framhaldi af komu á bráðamóttöku eða samkvæmt tilvísun.















