Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Þessi frétt er meira en árs gömul

Poorya Foroutan Pajoohian ungur vísindamaður Landspítala 2023

26. apríl 2023

Poorya Foroutan Pajoohian var útnefndur ungur vísindamaður Landspítala 2023 á Vísindum á vordögum, uppskeruhátíð vísindastarfs á spítalanum, í Hringsal 26. apríl.

Poorya Foroutan Pajoohian lauk BSc á sviði heilbrigðisvísinda árið 2016, MSc í ónæmisfræði árið 2019 og birti tvær greinar í Journal of Inflammation Research and Advanced Biomedical Research úr MSc ritgerð sinni sem var rannsókn á tjáningu CXC efnatoga viðtökum í dýralíkani af bráðri sáraristilbólgu (UC). Þeir sýndu að CXCR2 er eini viðtakinn fyrir efnatoga CXCL fjölskylduna sem sýndi auka tjáningu í tilrauna UC og að CXCR2 gæti gegnt mikilvægu hlutverki í meingerð sjúkdómsins.

Poorya starfaði samhliða námi sem vísindamaður á ýmsum rannsóknarstofum og hefur mikla reynslu á aðferðum sem notuð eru í klínískri rannsóknaþjónustu. Þegar Covid-19 faraldurinn hófst var Poorya doktorsnemi hjá Eiríki Steingrímssyni, prófessor í Háskóla Íslands sem stundar rannsóknir á sortuæxlum, að keyra að minnsta kosti 500 PCR sýni á dag á sjúkrahúsinu. Poorya vildi fara í frekara nám og sótti um doktorsnemastöðu hér á Íslandi sem hann fékk.

Poorya hóf PhD nám við læknadeild Háskóla Íslands undir leiðsögn Ingileifar Jónsdóttur prófessor og Stefaníu P. Bjarnarsonar dósents og starfar á ónæmisfræðideild Landspítala. Hann er stjórnarmaður í Lífvísindasetri sem fulltrúi doktorsnema. Hann vinnur nú að aðferðum til að vinna bug á takmarkaðri bóluefnissvörun og vernd gegn öndunarfærasýkingum. Nýlega birti hópur þeirra ritrýnda grein í „Journal of Frontiers in Immunology“ þar sem Poorya er þriðji höfundur og þeir sýndu fram á að ónæmisglæðarnir dmLT og mmCT auka bæði örvun og viðvarandi ónæmissvörun nýbura við bóluefninu Pn1- CRM197 eftir bólusetningu í slímhúð eða utan meltingarvegar. Poorya hefur einnig haldið erindi og kynnt veggspjöld með niðurstöður úr rannsóknum sínum innanlands og á alþjóðlegum ráðstefnum.

Poorya Foroutan Pajoohian er fæddur árið 1993 í Kúrdistan sem er í austurhluta Írans og á nýfæddan son sem heitir Kardo.