Opin mælaborð um starfsemi Landspítala
24. júní 2026
Landspítali hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að gera gögn aðgengilegri fyrir starfsfólk, með það að leiðarljósi að styðja betur við ákvarðanatöku og daglega stjórnun. Sú vinna byggir á áratuga uppbyggingu skráningar, gagnasöfnunar og þekkingar innan spítalans sem hefur skapað traustan grunn fyrir þessa þróun. Nýlega var svo stigið skref út á við þegar fyrstu mælaborðin voru birt opinberlega á island.is.

Með birtingunni er almenningi veitt skýrari og einfaldari innsýn í starfsemi spítalans. Mælaborðin eru fyrst og fremst hugsuð til að gefa heildaryfirsýn yfir reksturinn, ólíkt innri mælaborðum spítalans sem kafa dýpra í starfsemi einstakra deilda og eininga. Áhersla er lögð á skýra framsetningu og að upplýsingar séu settar fram á aðgengilegan og notendavænan hátt án þess að gera kröfu um sérþekkingu. Fyrstu mælaborðin varpa ljósi á stöðuna á bráðamóttökunni í Fossvogi og niðurstöður þjónustukönnunar ríkisstofnana, og þegar er unnið að gerð fleiri mælaborða.
Á næstunni verður bætt við yfirsýn yfir leguþjónustu og mannauð, með það að markmiði að draga upp heildstæðari mynd af starfseminni. Með því verður hægt að sjá samhengi milli lykilþátta í rekstrinum, svo sem þjónustuþörf, nýtingu úrræða og þróun í mannafla. Samhliða er unnið að því að bæta leiðir til að nálgast gögnin sjálf þannig að notendur geti á öruggan og þægilegan hátt sótt tölfræðilegar upplýsingar og unnið frekar með þau í eigin greiningum og gagnaverkefnum.
Mælaborðin geta nýst fjölmiðlum, opinberum aðilum, fagfólki og almenningi sem vill fylgjast með starfsemi og þróun Landspítala. Þau geta einnig verið gagnleg fyrir nemendur sem vinna verkefni tengd opinberri þjónustu, heilbrigðiskerfinu og gagnagreiningu, þar sem unnið er með raunveruleg gögn í stað tilbúinna dæma. Með þessu vill spítalinn auka gagnsæi, bæta miðlun upplýsinga og gera fleirum kleift að fá betri mynd af starfsemi stærsta spítala landsins.
Mælaborðin má finna hér.
