Ómun þvagblöðru í og eftir fæðingar
2. janúar 2026
Í tengslum við sérfræðinám ljósmæðranna Elsu Ruthar Gylfadóttur og Steinunnar H. Blöndal var innleitt gæðaverkefni á fæðingarvaktinni 23-B árið 2024 varðandi eftirlit á þvaglátum hjá konum í og eftir fæðingu. Markmið verkefnisins var að innleiða ómskoðanir til að meta þvagmagn í þvagblöðrunni og koma þannig í veg fyrir óþarfa þvagaftappanir nema í sérstökum tilvikum þar sem læknisfræðilegar ástæður liggja að baki.

Síðustu ár hefur fjöldi aftappana á þvagi í og eftir fæðingu verið mikill. Helsti áhættuþáttur fyrir þvagteppu í sjálfri fæðingunni er notkun mænurótardeyfingar, en eftir fæðingu eru ýmsir áhættuþættir eins og til dæmis áhaldafæðingar, spangaráverkar og langdregnar fæðingar. Fyrir innleiðingu gæðaverkefnisins var verklag á fæðingarvaktinni þannig uppbyggt að ef kona hafði ekki tæmt þvagblöðru í tvo til þrjá tíma var mælt með aftöppun þvags og í langdregnum fæðingum gat aftöppun átt sér stað allt upp í fimm sinnum. Aftöppun þvags er nærgöngult og óþægilegt inngrip og getur valdið vanlíðan hjá konum á þessu viðkvæma augnabliki sem fæðing er, auk þess sem aukin hætta er á sýkingum.
Í tengslum við aukna notkun á ómskoðunum í fæðingum hefur fæðingarvaktin fengið að gjöf ný þráðlaus og handhæg sónartæki sem hægt er að nýta til að óma þvagblöðruna. Þessi nýju tæki hafa skipt sköpum í þróuninni á þessu nýja verklagi í tengslum við mat á þvagmagni. Hefðbundin þvagómunartæki er ekki hægt að nota hjá konum í og eftir fæðingu vegna truflunar legsins á mælingum.
Nýju tækin taka lítið pláss og eru einföld í notkun. Þeim fylgir hefðbundin spjaldtölva sem er á hreyfanlegum standi. Þegar þvagblaðran hefur verið mæld eru tölurnar settar inn í formúlu og fæst þannig áætlað þvagmagn hjá viðkomandi konu. Von er á sérstöku snjallforriti í spjaldtölvuna á næstu árum til að flýta fyrir útreikningum.
Þvagblöðruómskoðun er einfalt inngrip sem hefur gengið vel að innleiða á fæðingarvaktinni þrátt fyrir að flestar ljósmæður hafi ekki fengið sértæka þjálfun á ómtækjunum. Ljósmæðrum er það dýrmætt að geta hlíft konum við óþarfa áreiti í fæðingum. Því hefur gengið einstaklega vel að kenna ljósmæðrum á fæðingarvaktinni á ómtækin og þetta nýja verklag hefur hlotið mikið lof. Mikil fækkun hefur verið á óþarfa aftöppunum, en ef þvag er mælt undir 250 ml er hægt að gefa konum lengri tíma til að reyna að hafa þvaglát. Þá hefur meðgöngu- og sængurkvennadeild tekið þátt í vinnu við þetta nýja verklag og fylgir eftir með áframhaldandi eftirfylgd með ómskoðunum hjá konum sem ekki hafa náð að hafa þvaglát eftir fæðinguna en eru með lítið þvag í blöðrunni við útskrift. Ekki hefur borið á aukningu á yfirfullum þvagblöðrum í og eftir fæðingu.
Nýja verklagið:

