Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Öryggisgeðdeild opnuð í nýuppgerðu húsnæði á Kleppi

2. júlí 2026

Framkvæmdum er nú lokið við endurnýjun á húsnæði öryggisgeðdeildar C0 á Kleppi, en deildin er hluti af réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala.

Fyrir skemmstu var opið hús þar sem gestir, meðal annars frá heilbrigðisráðuneytinu, Fangelsismálastofnun, Reykjavíkurborg auk starfsfólks og samstarfsaðila innan Landspítala, fengu tækifæri til að skoða deildina.

Hlutverk réttar- og öryggisgeðþjónustu er að veita sérhæfða og vandaða geðheilbrigðisþjónustu þar sem öryggi sjúklinga, starfsfólks og samfélags er haft að leiðarljósi og áherslan er á markvissa endurhæfingu og undirbúning fyrir samfélagsaðlögun. Þörfin fyrir þessa þjónustu hefur farið vaxandi á undanförnum árum og því var nauðsynlegt að ráðast í umbætur.

Einbýli, útivistarsvæði og íþróttaaðstaða

Húsnæðið var endurbyggt frá grunni — allt fjarlægt nema útveggir og öll rými endurhönnuð með það að markmiði að skapa vistlega, nútímalega og örugga deild. Samfara þessu var sérstök áhersla lögð á að skapa bestu mögulegu aðstæður fyrir sjúklinga; hvert herbergi er t.d. með sérbaði og salerni og allir njóta einbýlis. Pláss er fyrir átta einstaklinga auk sérstaks öryggissvæðis sem er ætlað þeim sem þurfa tímabundið meiri umönnun og eftirlit.

Nýuppgerða deildin er búin íþróttaaðstöðu og beinu aðgengi út í rúmgott og sólríkt útivistarsvæði. Þess má jafnframt geta að húsgögnin í rýmum sjúklinga eru ný og sérhönnuð fyrir krefjandi umhverfi í geðheilbrigðisþjónustu. Hönnunin tekur sérstaklega mið af öryggi, forvörnum gegn skaða og stuðningi við bata og vellíðan sjúklinga.

Hluti af stærri endurnýjun

Sem hluti af stærri uppbyggingu í réttar- og öryggisgeðþjónustu er gert ráð fyrir þremur átta rúma legudeildum innan RÖG. Verið er að breyta göngudeildarþjónustu í þverfaglegt samfélagsgeðteymi (FACT-forensic), en sú nálgun hefur gefist vel í nágrannalöndum.

Fyrsti áfangi uppbyggingar er opnun á endurnýjuðu húsnæði öryggisgeðdeildar C0. Í framhaldinu er fyrirhugað að opna nýja einingu, legudeild C1, í lok árs 2026 þar sem átta legurými bætast við réttar- og öryggisgeðþjónustu. Þá mun réttar- og öryggisgeðþjónustan ná yfir þrjár átta rúma legudeildir, með samtals 24 legurýmum og ferliþjónustu með þremur teymum; geðteymi fangelsa, Laufeyjarteyminu og samfélagsgeðþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu.