Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Öryggi sjúklinga er sameiginlegt verkefni

17. september 2026

Alþjóðlegur dagur sjúklingaöryggis er í dag, 17. september.

Frá árinu 2019 hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hvatt aðildarríki sín til að nýta daginn til að vekja athygli á mikilvægi sjúklingaöryggis, efla þátttöku sjúklinga og samfélagsins í öryggismálum og hvetja heilbrigðisstofnanir til markvissra umbóta í þágu öruggari heilbrigðisþjónustu. Megintilgangurinn er að minna á að allir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda eiga rétt á öruggri umönnun og að verða ekki fyrir skaða af völdum hennar.  

Þegar þjónustan spannar mörg ár 

Þema dagsins í ár er „Örugg þjónusta á öllum æviskeiðum“ með áherslu á fólk með langvinna sjúkdóma. Langvinnir sjúkdómar, svo sem hjarta- og æðasjúkdómar, krabbamein, langvinnir lungnasjúkdómar og sykursýki, geta haft áhrif á fólk á öllum aldri og fylgt því um langt skeið, jafnvel alla ævi. Fólk með langvinna sjúkdóma þarf því oft þjónustu á mörgum stigum heilbrigðiskerfisins og yfir langan tíma. Við slíkar aðstæður skiptir samfelld, samhæfð og örugg þjónusta sköpum. 

Fólk með langvinna sjúkdóma í aukinni áhættu 

Samkvæmt WHO verður einn af hverjum tíu sjúklingum fyrir skaða í tengslum við heilbrigðisþjónustu og talið er að um helming slíkra atvika megi koma í veg fyrir. WHO bendir á að fólk með langvinna sjúkdóma sé í aukinni hættu á að verða fyrir skaða í heilbrigðisþjónustu vegna langvarandi og oft flókins meðferðarferlis. Þessir sjúklingar þurfa gjarnan endurtekna þjónustu hjá mörgum þjónustuaðilum yfir langan tíma og því eykst hættan á að eitthvað fari úrskeiðis ef þjónustan er ekki vel samhæfð. Samfelld þjónusta, góð samhæfing milli þjónustuaðila og stuðningur við heilbrigðisstarfsfólk eru meðal lykilforsendna öruggrar heilbrigðisþjónustu. Jafnframt er mikilvægt að efla þátttöku sjúklinga og aðstandenda í meðferð og ákvarðanatöku. Þannig má draga úr skaða og stuðla að betri gæðum þjónustunnar. 

Öryggi sem hluti af daglegri hugsun 

Á Landspítala vinnur starfsfólk daglega að því að efla sjúklingaöryggi með því að greina áhættu, læra af atvikum, bæta verklag og stuðla að öflugri öryggismenningu. Í tilefni Alþjóðlegs dags sjúklingaöryggis verður vikuna 14.-21. september lögð sérstök áhersla á að halda sjúklingaöryggi sýnilegu í daglegu starfi með fræðslu og áminningum um allan spítala. Einnig verður haldið málþing í samstarfi við embætti landlæknis, þar sem fjallað verður um öryggi sjúklinga með langvinna sjúkdóma og mikilvægi samfelldrar og öruggrar heilbrigðisþjónustu.