Nýtt vöruhús Landspítala – fimmföld stækkun sem styrkir rekstraröryggi
19. mars 2026
Aðfangaþjónusta Landspítala hefur flutt í nýtt og nútímalegt vöruhús að Tunguhálsi 1. Með flutningnum stækkar vöruhúsið úr 500 fermetrum í 2.500 fermetra – fimmföldun á rými sem markar eitt stærsta verkefni aðfangaþjónustu til þessa.

Stækkunin skapar verulega bætta aðstöðu, skilvirkara vinnuflæði og aukna getu til að þjónusta allar deildir spítalans. Með auknu rými er hægt að byggja upp öryggislager og tryggja betur að mikilvægar vörur séu tiltækar þegar á þarf að halda. Öryggislager gerir aðfangaþjónustunni kleift að mæta ófyrirséðum sveiflum í eftirspurn og truflunum í aðfangakeðju og dregur þannig úr áhættu á skorti sem getur haft áhrif á starfsemi deilda.
Í dag þjónustar vöruhúsið um 20% af heildarvöruúrvali spítalans. Með stækkuninni er markmiðið að auka það hlutfall í allt að 80% á næstu tveimur árum. Það mun fela í sér mun meiri miðlæga þjónustu, aukna yfirsýn og samræmingu í birgðahaldi og styrkja verulega rekstraröryggi spítalans og afhendingaröryggi til deilda.

Undirbúningur flutninganna hefur staðið yfir í um þrjú ár og fól meðal annars í sér heildarendurskoðun á rými, vinnuferlum og birgðastýringu. Samhliða flutningunum var innleitt nýtt vöruhúsakerfi í vefkerfinu Orra sem eykur yfirsýn, rekjanleika og skilvirkni í þjónustuflæði.
Verkefnið hefur verið umfangsmikið samstarfsverkefni þar sem starfsfólk aðfangaþjónustu, hönnunardeildar, tölvudeildar og fleiri lykileininga spítalans lögðu hönd á plóg. Undirbúningur og framkvæmd flutninganna krafðist mikillar samvinnu, skipulagningar og fagmennsku, og er öllum sem komu að verkefninu þakkað fyrir mikilvægt framlag.
Nýtt húsnæði og búnaður – þar á meðal sjálfvirkir Kardex-turnar – styðja við betri nýtingu rýmis, styttri viðbragðstíma og bætt aðgengi að vörum.

Flutningarnir hafa gengið vel, þó að eðlilegar áskoranir fylgi innleiðingu nýrra lausna og aðstöðu. Starfsfólki er þakkað fyrir samstarf og skilning á meðan nýir ferlar og vinnuaðstaða eru að festa sig í sessi.
Opnun Tunguháls 1 er jafnframt lykilskref í undirbúningi fyrir stækkun Landspítala og nýjan meðferðarkjarna. Með sterkari og nútímalegri aðfangakeðju er grunninn styrktur að öruggri og áreiðanlegri þjónustu við klíníska starfsemi og sjúklinga til framtíðar.

