Nýtt hjólaskýli við BUGL
15. desember 2025
Nýtt hjólaskýli hefur verið reist við BUGL og því nú komin aðstaða til að geyma og læsa inni reiðhjólum. Þetta verndar hjólin fyrir veðri, vindum og þjófnaði.

Til að auka öryggið enn frekar er skýlið búið innri gluggatjöldum. Rými er fyrir a.m.k. átta reiðhjól og þar eru einnig tenglar til hleðslu rafmagnshjóla.
Húsið uppfyllir nýjustu byggingarstaðla Landspítala og er vel tækjum búið. Þar má nefna rafræna aðgangsstýringu, rafdrifna hurðaropnun, LED-lýsingu, upphitun, loftræstingu, niðurföll í gólfi og reykskynjara.
