Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Nýtt æðaþræðingartæki byltir meðferð æðasjúkdóma

27. febrúar 2026

Ný æðaþræðingarstofa verður opnuð á Landspítala í Fossvogi í sumar. Á stofunni verður að finna BiPlane æðaþræðingartæki, það fyrsta sinnar tegundar hér á landi, og markar það byltingu í bráðaþjónustu við sjúklinga með heilablóðföll og aðra flókna æðasjúkdóma.

Með BiPlane tækinu er hægt að sjá æðakerfið úr tveimur áttum samtímis í rauntíma. Í aðgerðum þar sem hver sekúnda telur getur þessi tækni skilið á milli varanlegs skaða og bata. Hingað til hefur spítalinn notast við svokallað „single plane“ tæki þar sem aðeins er hægt að mynda úr einni átt í einu. BiPlane tækið stýrir betur geislaálagi og fer að auki betur með nýru sjúklinga þar sem þeir þurfa minna skuggaefni í æð.

Flókin uppsetning

Framkvæmdir á E4 í Fossvogi eru í þann mund að hefjast og fara þær fram í áföngum út júnímánuð. Þær verða nokkuð umfangsmiklar en að sögn Önnu Köru Tómasdóttur, verkefnastjóra BiPlane, er uppsetning tækisins flókin verkfræðileg áskorun. Styrkja þarf gólf og loft, endurnýja loftræstingu og tryggja hámarksgeislavarnir.