Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Nýr kafli í blóðlækningum: CAR-T meðferð hefst á Landspítala

3. nóvember 2026

Landspítali hefur hlotið samþykki til að veita CAR-T frumumeðferð hér á landi. Með þessu hefur verið stigið mikilvægt skref í uppbyggingu hátæknimeðferða við alvarlegum blóðsjúkdómum og íslenskum sjúklingum gefst nú kostur á að sækja þessa sérhæfðu meðferð innanlands í stað þess að þurfa að fara utan.

CAR-T er háþróuð ónæmismeðferð þar sem eigin ónæmisfrumur sjúklings eru nýttar til að ráðast gegn krabbameinsfrumum. T-eitilfrumur eru fyrst teknar úr blóði sjúklings með hvítkornaskilju. Þær eru síðan erfðabreyttar þannig að þær fá sérstakan viðtaka, svokallaðan CAR-viðtaka, sem gerir þeim kleift að þekkja ákveðnar krabbameinsfrumur. Eftir að frumunum hefur verið fjölgað utan líkamans eru þær gefnar aftur til sjúklingsins, þar sem þær geta fjölgað sér og leitað uppi krabbameinsfrumur sem bera viðeigandi mótefnavaka og eytt þeim. 

Uppbygging meðferðarinnar umfangsmikið verkefni 

CAR-T meðferð hefur á undanförnum árum orðið mikilvægur meðferðarkostur fyrir sjúklinga með ákveðin blóðkrabbamein, sem hafa ekki svarað hefðbundinni meðferð nægilega vel. Meðferðin er meðal annars notuð við ákveðnum tegundum B-eitilfrumukrabbameina og bráðu B-eitilfrumuhvítblæði. Einnig eru til CAR-T meðferðir við mergæxli, þar sem frumurnar beinast að öðru skotmarki en í B-eitilfrumumeinum. 

Á Landspítala verður í upphafi unnið með tvær CAR-T frumuafurðir: Yescarta (axicabtagene ciloleucel) og Tecartus (brexucabtagene autoleucel). Fleiri CAR-T frumuafurðir eru til og geta verið teknar í notkun hér á landi eftir því sem samningar og nauðsynlegar forsendur fyrir notkun þeirra komast á. 

Mikilvægur áfangi í þróun blóðlækninga á Íslandi 

Hingað til hafa íslenskir sjúklingar sem þurft hafa á CAR-T meðferð að halda þurft að sækja hana til Lundar í Svíþjóð. Með því að taka upp meðferðina á Landspítala færist þjónustan nær sjúklingum og aðstandendum og dregur úr því álagi sem fylgir því að þurfa að ferðast erlendis vegna umfangsmikillar krabbameinsmeðferðar. 

CAR-T meðferð kallar einnig á langtímaeftirlit. Fylgjast þarf meðal annars með blóðmyndun, ónæmiskerfi og sýkingaráhættu eftir meðferð. Þekking og reynsla sem byggist upp með starfseminni verður jafnframt mikilvæg þegar horft er til framtíðar, enda er þróun á sviði CAR-T meðferða hröð og verið er að rannsaka notkun þeirra við sífellt fleiri sjúkdómum. 

Innleiðing CAR-T meðferðar er því mikilvægur áfangi í þróun blóðlækninga á Íslandi. Með henni verður hægt að veita hér á landi sérhæfða hátæknimeðferð sem íslenskir sjúklingar hafa hingað til þurft að sækja til erlendra háskólasjúkrahúsa. Markmiðið er jafnframt að halda áfram að byggja upp þekkingu og getu á þessu sviði og þróa samstarf við fleiri framleiðendur þannig að fleiri möguleikar í CAR-T meðferð geti komið til greina hér á landi á komandi árum. 

---

Umfangsmikil uppbygging CAR-T meðferðar á Landspítala 

Uppbygging CAR-T meðferðar á Landspítala hefur verið umfangsmikið verkefni. Meðferðin krefst náins samstarfs margra sérgreina og fagstétta og þarf að tryggja öruggt ferli allt frá vali sjúklings og söfnun frumna til þess að frumurnar séu gefnar aftur. Jafnframt þarf að vera til staðar sérhæfð þekking og viðbúnaður vegna þeirra fylgikvilla sem geta komið fram eftir meðferðina. 

Sem hluti af undirbúningi starfseminnar hefur Landspítali farið í gegnum strangt vottunarferli á vegum lyfjafyrirtækisins Kite/Gilead, vegna CAR-T frumuafurðanna Yescarta og Tecartus. Vottunarferlið er liður í því að tryggja að Landspítali uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til meðferðarinnar og að öll skref hennar séu framkvæmd með öruggum og samræmdum hætti. Unnið hefur verið náið með framleiðandanum að uppbyggingu starfseminnar og undirbúningi fyrir meðferð sjúklinga. 

Að starfseminni koma meðal annars blóðlæknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, starfsfólk Blóðbankans, lyfjafræðingar, gjörgæslulæknar og taugalæknar, auk starfsfólks annarra eininga Landspítala.