Nýr aðgerðarþjarki á Landspítala
12. júní 2026
Nýverið var haldin móttaka í Hringsal þar sem styrktaraðilum var þakkað fyrir þeirra framlag til kaupa á nýjum aðgerðarþjarka fyrir Landspítala.

Nýi þjarkinn mun nýtast í fjölbreyttum skurðaðgerðum og verður með honum hægt að fjölga aðgerðum, stytta biðtíma og veita enn fleiri sjúklingum aðgang að hátæknimeðferð. Tækið býður upp á aukna nákvæmni, þrívíddarsýn og betri hreyfigetu sem styður við öruggari og markvissari aðgerðir.
Í eftirfarandi myndbandi er rætt við Jórunni Atladóttur, ristil- og endaþarmsskurðlækni, og Eirík Jónsson, yfirlækni þvagfæraskurðlækninga.









