Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Nýjar reglur um vernd uppljóstrara og örugg tilkynningargátt á innri vef

15. september 2026

Landspítali hefur sett nýjar reglur um vernd uppljóstrara, í samræmi við lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara. Samhliða hefur verið opnuð tilkynningargátt á innri vef spítalans.

Markmiðið með tilkynningargáttinni er að skapa öruggt umhverfi þar sem starfsfólk getur komið ábendingum á framfæri ef grunur er um lögbrot eða aðra alvarlega og ámælisverða háttsemi í starfsemi spítalans.

Reglurnar eiga við þegar starfsmaður miðlar upplýsingum til spítalans í góðri trú um að sú háttsemi sem um ræðir ógni almannahagsmunum eða brjóti í bága við lög. Dæmi um slík mál geta verið:

  • Veruleg ógn við öryggi eða heilsu sjúklinga og starfsfólks

  • Fjársvik, spilling eða misferli með fjármuni

  • Alvarleg og kerfislæg brot á lögum eða verklagsreglum

Mikilvægt er að taka fram að reglurnar ná ekki yfir hefðbundinn ágreining milli samstarfsmanna eða einstök mál er varða einelti og áreitni (EKKO). Slík mál fara áfram eftir sérstökum mannauðsferlum spítalans.

Það er forgangsatriði að starfsfólk geti stigið fram án þess að óttast neikvæðar afleiðingar:

  • Þagnarskylda og nafnleynd: Landspítala er skylt samkvæmt lögum að gæta fullrar leyndar um persónuupplýsingar þess sem sendir ábendingu. Nafn uppljóstrara er aldrei gefið upp nema með afdráttarlausu samþykki hans.

  • Bann við óréttlátri meðferð: Samkvæmt lögum er með öllu óheimilt að láta starfsmann gjalda þess að hafa sent inn ábendingu í góðri trú. Hvers kyns hefndaraðgerðir eða óréttlát meðferð geta talist alvarleg brot í starfi.

Hvernig er tilkynnt og hvað gerist næst?

  1. Rafræn tilkynningargátt: Starfsmenn geta sent ábendingar á einfaldan og öruggan hátt í gegnum

    tilkynningargátt á innri vef spítalans. Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri beint til næsta yfirmanns eða lögfræðiteymis spítalans.

  2. Hlutlæg meðferð: Lögfræðiteymi Landspítala tekur við tilkynningum, fer yfir gögn og sér um að málið sé rannsakað á hlutlægan og faglegan hátt.

  3. Endurgjöf: Sá sem sendir inn ábendingu fær upplýsingar um stöðu málsins og til hvaða aðgerða hefur verið gripið.

Með þessu vill Landspítali efla opna og heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem fagmennska, öryggi og traust eru ávallt í fyrirrúmi.