Nýjar öndunarvélar á Landspítala
5. nóvember 2026
Teknar hafa verið í notkun nýjar ytri öndunarvélar á Landspítala af gerðinni Elisa 300 frá Löwenstein.

Nýju Elisa 300 vélarnar eru fullkomnar vélar sem hægt er að nota sem innri öndunarvélar ef til nýs faraldurs kæmi. Þær eru þó aðallega hugsaðar til notkunar á legudeildum ef sjúklingar þarfnast BiPAP/CPAP eða high-flow meðferðar.

