Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Ný ytri og innri persónuverndarstefna Landspítala

19. febrúar 2026

Landspítali hefur sett sér bæði ytri og innri persónuverndarstefnu sem marka skýra umgjörð um meðferð persónuupplýsinga í allri starfsemi spítalans. Tilgangurinn er að efla gagnsæi, skýra ábyrgð og tryggja að vinnsla persónuupplýsinga sé örugg, fagleg og í samræmi við lög, reglur og bestu starfsvenjur í heilbrigðisþjónustu.

Ytri persónuverndarstefnan, sem birt er á vef Landspítala, er fyrst og fremst hugsuð til að upplýsa sjúklinga, aðstandendur og almenning á skýran og aðgengilegan hátt um hvernig spítalinn vinnur með persónuupplýsingar. Í stefnunni er fjallað um hvaða gögn eru unnin, í hvaða tilgangi þau eru nýtt, hver lagagrundvöllur vinnslunnar er, hvaða aðilar kunna að fá aðgang að þeim og hvernig þeim er tryggður trúnaður og öryggi. Einnig eru útskýrð réttindi einstaklinga samkvæmt persónuverndarlögum og leiðir til að nýta þau. Markmið stefnunnar er að auka gagnsæi, styrkja traust og tryggja að allir sem leita þjónustu Landspítala fái skýrar upplýsingar um hvernig gögn þeirra eru meðhöndluð.

Innri persónuverndarstefnan (STE-0026) er hluti af gæðastjórnun og innra stjórnkerfi spítalans. Stefnan er sett fram til að tryggja samræmd og örugg vinnubrögð í allri vinnslu persónuupplýsinga og til að styðja við ábyrgðarskyldu spítalans samkvæmt persónuverndarlögum sem og sjúkraskrárlögum. Í stefnunni er skilgreint hvaða skyldur hvíla á forstjóra, framkvæmdastjórn og öllu starfsfólki og nemendum og hvernig persónuverndarfulltrúi og innri endurskoðun koma að því að tryggja eftirfylgni og fagleg vinnubrögð. Stefnan fjallar jafnframt um meginreglur vinnslu persónuupplýsinga, innbyggða og sjálfgefna persónuvernd, vinnsluskrá, vinnsluaðila, mat á áhrifum á persónuvernd, viðbrögð við öryggisbrestum og kröfur um fræðslu og innra eftirlit.

Með því að setja sér tvær samræmdar persónuverndarstefnur styrkir Landspítali bæði innri öryggisumhverfi sem og upplýsingagjöf til almennings. Stefnurnar hafa nú verið samþykktar af forstjóra Landspítala og verða kynntar nánar á næstu vikum. Vonir standa til að stefnurnar muni styðja áframhaldandi umbótastarf og efla traust sjúklinga og starfsfólks á meðferð persónuupplýsinga hjá Landspítala.