Ný sýnamóttaka og blóðsýnataka í K-byggingu á Hringbraut
9. apríl 2026
Í dag, fimmtudaginn 9. apríl, verður sameiginleg móttaka fyrir alla skjólstæðinga blóðsýnatöku og sýnamóttöku á Landspítala við Hringbraut opnuð í anddyri K-byggingar. Aðkoman er frá Barónsstíg.

Sameiginleg móttaka á að tryggja styttri aðkomu skjólstæðinga í blóðsýnatöku auk skilvirkara og einfaldara flæðis sýna með skýrari verkferlum.
Með nýrri sameiginlegri móttöku þarf utanaðkomandi fagfólk, almenningur og skjólstæðingar aðeins að þekkja einn móttökustað þegar sýnum er skilað til Landspítala á Hringbraut eða komið er í blóðtöku.
Gert er ráð fyrir að móttakan taki við að minnsta kosti 2.000 sýnum á mánuði þegar starfsemin verður komin í fullan gang.
Nýja sýnamóttakan og blóðsýnatakan verða opin alla virka daga kl. 8:00-15:30. Hægt er að nálgast leiðbeiningar um hvernig finna má nýju móttökuna hér.
