Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Ný stjórn Landspítala fundaði í fyrsta sinn

24. ágúst 2026

Ný stjórn Landspítala til næstu tveggja ára var skipuð í sumar og fór fyrsti fundur hennar fram þann 21. ágúst sl.

Alma Möller heilbrigðisráðherra og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, ásamt nýrri stjórn Landspítala, varamönnum og áheyrnarfulltrúum starfsmanna spítalans.

Formaður stjórnarinnar er Regína Ásvaldsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Mosfellsbæjar, og varaformaður er Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka. 

Aðrir stjórnarmenn eru Anna Sigríður Íslind, doktor í tölvunarfræði og prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, Thor Aspelund, doktor í líftölfræði og prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum hjá Háskóla Íslands, og Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Varamenn eru Óskar Reykdalsson, sérfræðingur í heimilislækningum, og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir félagsráðgjafi. 

Þá voru skipaðir tveir áheyrnarfulltrúar starfsmanna spítalans. Þeir eru Signý Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Theodór Skúli Sigurðsson svæfingalæknir. Varamaður er Sólveig Steinunn Pálsdóttir sjúkraþjálfari. 

Stjórn Landspítala, í samráði við forstjóra, markar spítalanum langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun heilbrigðisráðherra og lögbundið hlutverk stofnunarinnar. Hlutverk hennar er einnig að yfirfara árlega starfsáætlun og ársáætlun samkvæmt lögum um opinber fjármál, leggja sjálfstætt mat á áætlanirnar og markmið og mælikvarða sem þar eru sett fram og gera ráðherra grein fyrir mati sínu.