Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Ný deild á Kleppi í undirbúningi

12. október 2026

Til stendur að opna nýja átta rúma réttar- og öryggisgeðdeild í mars á næsta ári.

Deildin er viðbót við þá réttar- og öryggisgeðþjónustu sem þegar er til staðar á spítalanum en henni er ætlað að sinna endurhæfingu þeirra sem eru lengra komin í sínu bataferli og er verið að undirbúa til að fara aftur út í samfélagið.

„Þessi viðbót við þá þjónustu er náttúrulega alveg ótrúlega flott, bæði fyrir sjúklingahópinn okkar og aðstandendur þeirra og líka fyrir samfélagið í heild sinni því að þetta snýst um að tryggja öryggi og að öryggi og mannvirðing fari hönd í hönd fyrir þennan veika hóp sem skiptir gríðarlega miklu máli að fái heilbrigðisþjónustu,“ segir Jóhanna G. Þórisdóttir, deildarstjóri réttar- og öryggisgeðdeildar á Landspítala.