Norræn ráðstefna um gervigreind haldin á Karolinska-sjúkrahúsinu
28. ágúst 2026
Um 250 stjórnendur og sérfræðingar frá Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og víðar tóku þátt í fyrstu norrænu ráðstefnunni um gervigreind fyrir háskólasjúkrahús sem fram fór á Karolinska háskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi þann 25.-26. ágúst sl. Á meðal ráðstefnugesta voru Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, og annað starfsfólk spítalans.

Megináhersla ráðstefnunnar var ekki á tæknina sjálfa heldur hvernig hægt er að innleiða gervigreind á öruggan, árangursríkan og sjálfbæran hátt. Rætt var um hvernig færa megi notkun gervigreindar frá einstökum tilraunaverkefnum yfir í lausnir sem nýtast víða í klínísku starfi og skila raunverulegum ávinningi fyrir sjúklinga, heilbrigðisstarfsfólk og samfélagið, líkt og bæting röðunar í skurðaðgerðir og bæting flæðis sjúklinga sem koma á bráðamóttöku.
Á ráðstefnunni kom fram að ein af ástæðum þess að ákveðið var að halda hana, er að heilbrigðiskerfi víða um heim standa frammi fyrir vaxandi eftirspurn og flóknari þörfum á sama tíma og skortur er á starfsfólki og auðlindir eru takmarkaðar. Því þurfi nýjar leiðir til að bæta gæði og árangur þjónustunnar og nýta mannafla og önnur úrræði betur. Með því að innleiða ákveðnar tæknilausnir geti heilbrigðisstarfsfólk sinnt starfi sínu betur, hægt sé að stytta biðtíma, styðja við greiningu og meðferð, bæta upplifun og útkomu sjúklinga. Gervigreind sé ein leið til að takast á við þessar áskoranir en tekið var fram að hún er ekki töfralausn. Til að hún skili raunverulegum ávinningi þarf gott stjórnskipulag, eftirlit og samstarf, auk skýrrar forystu og umgjarðar um öryggi, ábyrgð og traust.

Nordic AI Health Map kynnt
Á ráðstefnunni var haldin kynning á Nordic AI Health Map, fyrstu heildstæðu kortlagningunni á verkefnum og lausnum á sviði gervigreindar í heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndunum.
Markmið Nordic AI Health Map er að gera verkefni sem þegar eru í gangi sýnilegri og auðvelda stofnunum að deila reynslu og byggja á lausnum sem hafa sýnt árangur. Til lengri tíma getur kortið dregið úr tvíverknaði og auðveldað innleiðingu árangursríkra lausna víðar, þvert á stofnanir og landamæri.
Sameiginlegt norrænt framlag
Norrænt samstarf er álitið sérstaklega mikilvægt nú þegar gervigreind þróast hratt og Evrópusambandið innleiðir ný regluverk, þar á meðal AI Act. Á Norðurlöndunum þykja góð skilyrði fyrir þróun og notkun gervigreindar, svo sem mikið traust á opinberum stofnunum, umfangsmikið safn heilbrigðisgagna og öflugir stafrænir innviðir. Á ráðstefnunni var því einnig rætt hvernig Norðurlöndin geta unnið saman að innleiðingu AI Act og jafnframt skapað góð skilyrði fyrir nýsköpun og ábyrga notkun gervigreindar í heilbrigðisþjónustu.
Ráðstefnan var haldin af Nordic Council of Ministers eHealth Group í samstarfi við Karolinska-háskólasjúkrahúsið og fjölmarga aðrar hópa og stofnanir, til að mynda Samtök norrænna háskólasjúkrahúsa (Nordic University Hospital Alliance, NUHA).
Ætlunin er að ráðstefnan verði árlegur vettvangur fyrir háskólasjúkrahús, stjórnvöld, rannsóknastofnanir og aðra sem vinna að gervigreind og heilbrigðisþjónustu. Næsta ráðstefna verður haldin í Osló.

Gunnar Thorarensen, yfirlæknir Stafrænnar heilsu og svæfinga- og gjörgæslulæknir á Landspítala, tók þátt í pallborði.

Magnús Gottfreðsson, forstöðumaður vísindadeildar Landspítala, ræðir við Runólf Pálsson, forstjóra spítalans.
