Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Níu læknar luku sérnámi

7. október 2025

Málþing sérnáms fór fram 18. september.

Á myndinni eru: Margrét Dís Óskarsdóttir, yfirlæknir sérnáms, Tómas Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, Inga Sif Ólafsdóttir, yfirlæknir sérnámsgrunnslækna, Steinar Orri Hafþórsson, sérfræðingur í bráðalækningum, Sasan Már Nobakht, sérfræðingur í bráðalækningum, Marta Ólafsdóttir, sérfræðingur í lyflækningum, Unnur Ósk Stefánsdóttir, sérfræðingur í bráðalækningum, Christina Sandra D. Andersson, sérfræðingur í öldrunarlækningum, Þórunn Helga Felixdóttir, sérfræðingur í öldrunarlækningum, Páll Óli Ólason, sérfræðingur í bráðalækningum, Nils Daníelsson, sérfræðingur í bráðalækningum, og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala. Petra Emmeke Beltman, nýútskrifaður sérfræðingur í geðlækningum, var fjarverandi.

Á málþinginu voru heiðraðir níu sérfræðingar sem hafa lokið fullu sérnámi við Landspítala síðastliðið ár. Af þeim voru fimm sem luku sérnámi í bráðalækningum sem heyrir til tíðinda enda jafngildir þetta fimmtungs aukningu bráðalækna hér á landi.

Um er að ræða verulega framför í þjónustu við einstaklinga með bráð veikindi og þá sem lenda í slysum.

„Þú ættir að sjá vaktaskemað núna miðað við fyrir ári síðan, þetta er þvílíkur munur,“ segir Hjalti Már Björnsson, kennslustjóri bráðalækna, sem á stóran heiður af því að þessum áfanga hafi verið náð.

Málþinginu var stýrt af Halldóru Ögmundsd. Michelsen, umsjónarsérnámslækni í öldrunarlækningum við Landspítala.