Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Minnka blöðruhálskirtil með vatnsgufu

25. febrúar 2026

Þann 19. febrúar sl. var hundraðasta meðferðin með Rezum-tæki veitt á göngudeild þvagfæra á Hringbraut. Um er að ræða meðferð hjá sjúklingum með góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli sem felst í að heitri vatnsgufu er sprautað inn í kirtilinn.

Karlmenn með stækkaðan blöðruhálskirtil geta glímt við einkenni sem trufla mikið daglegt líf. Þeir eiga erfitt með að tæma þvagblöðruna og eru með tíð þvaglát, jafnt á daginn sem á nóttunni. Þá eiga þeir frekar á hættu að fá þvagfærasýkingu auk þess sem þeir geta lent í þvagtregðu og jafnvel þvagstoppi.

Minna inngrip og léttir á skurðstofustarfsemi

Tvenns konar meðferðir eru í boði á Landspítala við góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli: Annars vegar heflunaraðgerð, sem hefur verið framkvæmd á spítalanum í áratugi, og hins vegar meðferð með Rezum-tæki sem byrjað var að veita árið 2024. Heflunaraðgerðin fer fram á skurðstofu þar sem sjúklingurinn er svæfður eða mænudeyfður. Sjúklingurinn er útskrifaður heim með þvaglegg og þarf síðar að koma á göngudeild þvagfæra í þvagleggstöku og eftirfylgd.

Rezum-meðferðin fer aftur á móti fram í staðdeyfingu á göngudeildinni, sjúklingurinn er í skemmri tíma á spítalanum og útskrifast með þvaglegg sem hann sjálfur fjarlægir einni viku síðar. Meðferðin hentar best þeim sjúklingum sem eru með blöðruhálskirtil undir 80 grömmum og fylgir henni minni hætta á blæðingum og kynlífstengdum aukaverkunum. Rezum-meðferðin felur því í sér minna inngrip fyrir sjúklinginn og þar sem heflunaraðgerðum hefur á móti fækkað þýðir það að meira rými hefur skapast fyrir aðrar aðgerðir sem gerðar eru á skurðstofunni.

Rezum-teymið: Árni Stefán Leifsson, sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningum, Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Svala Björg Rúnarsdóttir, sérhæfður starfsmaður, og Bryndís Snæfríður Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Rezum-teymið: Árni Stefán Leifsson, sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningum, Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Svala Björg Rúnarsdóttir, sérhæfður starfsmaður, og Bryndís Snæfríður Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Hvernig fer Rezum-meðferðin fram?

Sjúklingurinn fær verkjalyf í æð og staðdeyft er í kringum blöðruhálskirtil og í þvagrás. Speglað er í gegnum þvagrásina með Rezum-tækinu. Þegar komið er að blöðruhálskirtlinum er hann mældur út og þar til gerð nál notuð til að stinga á kirtilinn og sprauta inn í hann heitri vatnsgufu. Yfirleitt þarf að framkvæma 4-6 stungur. Vatnsgufan hefur þau áhrif að kirtillinn skreppur saman og við það er ekki lengur þrengt að þvagrásinni sem liggur í gegnum blöðruhálskirtilinn. Að lokum er settur upp þvagleggur en vegna bólgu sem myndast á svæðinu þurfa sjúklingarnir að vera með þvaglegginn í viku á meðan bólgan hjaðnar. Sjúklingarnir fjarlægja svo þvaglegginn sjálfir. Í það heila eru sjúklingarnir á göngudeildinni í að hámarki tvo tíma með öllu – undirbúningi, meðferð og jafna sig.