Mikilvægir áfangar í skugga viðkvæmrar stöðu
18. september 2026
Forstjórapistill Runólfs Pálssonar úr nýjasta tölublaði Spítalapúlsins.

Nú þegar haustið gengur í garð er betri staða innan bráðaþjónustu spítalans kærkomin breyting og gleðilegt að ákveðinn vinnufriður skapist til góðra verka. Fækkun sjúklinga með samþykkt færni- og heilsumat sem vistast langdvölum á spítalanum er mikilvægur og langþráður áfangi. Hins vegar getur ávinningur sem þessi breyst hratt til hins verra eins og við höfum ítrekað séð á undanförnum árum. En það eru fleiri jákvæðar fregnir innan bráðaþjónustunnar. Á næstunni opnar bráðamatsdeild sem mun gefa okkur 20 ný legurými og eru bundnar vonir við að sú mikla vinna sem unnin hefur verið við endurskipulagningu bráðaþjónustunnar síðustu ár skili tilætluðum árangri í kjölfarið. Hefur verið lögð áhersla á að velta við öllum steinum þannig að hægt verði að takast á við fleiri og flóknari verkefni ásamt því að hámarka nýtingu úrræða, skilvirkni og hagkvæmni. Bráðadagdeild lyflækninga og flýtiþjónusta sérgreina eru einnig hluti af þessu verkefni og enn fremur er stefnt að uppbyggingu öflugrar heimaspítalaþjónustu á komandi misserum. Með þessum breytingum er fyrst og síðast lögð áhersla á bætta þjónustu við sjúklinga með markvissri stýringu í viðeigandi farvegi innan bráðaþjónustunnar. Ég er þakklátur öllu því starfsfólki sem hefur lagt hönd á plóg við að efla þennan þjónustuþátt sem oft og tíðum er andlit spítalans út á við.
Nú hafa fjárlög ársins 2027 verið lögð fram á Alþingi og vekur það líkt og oft áður upp blendnar tilfinningar. Það er óumdeilt að fjárframlög til Landspítala hafa ekki haldið í við þjónustuaukningu síðustu ára auk þess sem háskólahlutverk spítalans hefur lengi verið vanfjármagnað. Svo virðist sem herða eigi áfram aðhaldsaðgerðir á opinberar stofnanir og er spítalinn ekki undanskilinn því. Ég óttast að þessi ráðstöfun muni hefta nauðsynlega framþróun innan Landspítala og þannig óhjákvæmilega leiða til stöðnunar. Við stöndum þegar höllum fæti í samanburði við háskólasjúkrahús á hinum Norðurlöndunum og munum dragast enn frekar aftur úr ef heldur sem horfir. Verður það að teljast varhugaverð staða fyrir okkar eina háskólasjúkrahús.
Ljóst er að fjármögnun á grundvelli þjónustutengdrar fjármögnunar hefur ekki verið í samræmi við veitta þjónustu, líkt og slíkri fjármögnun er ætlað, og því má segja að raunveruleiki fastrar fjármögnunar sé enn við lýði. Ef spítalinn fengi greitt fyrir unnin verk líkt og þjónustutengd fjármögnun gerir ráð fyrir stæði rekstur spítalans vel. Leita þarf allra mögulegra leiða til að standa betur að þróun Landspítala til framtíðar. Vissulega eru miklar væntingar til meðferðarkjarnans og rannsóknahússins sem nú rísa við Hringbraut. En það dugar ekki til að Landspítali verði öflugt háskólasjúkrahús í framtíðinni. Ljóst er að ríkissjóður býr yfir takmörkuðum fjármunum og því verðum við að sýna skilning. Af þeim sökum er brýnt að skoða nýtingu allra þeirra fjármuna sem veittir eru til heilbrigðisþjónustunnar og meta hvort tækifæri séu til hagræðingar sem gæti komið að notum fyrir Landspítala því þótt skórinn kreppir víða þá er nauðsynlegt að standa vörð um þjónustu eina háskólasjúkrahúss þjóðarinnar. Í því skyni verður að leggja höfuðáherslu á að efla skipulag þjónustu og nýtingu mannauðs þvert á heilbrigðisþjónustuna með hliðsjón af forgangsröðun verkefna.
Þrátt fyrir erfiða rekstrarstöðu er tilefni til að minna á og lyfta fram því gríðarlega góða starfi sem unnið er alla daga innan Landspítala. Afburðastarfsfólk er ekki með hugann við áskoranir í rekstri þegar það sinnir sjúkum og slösuðum. Þvert á móti eru umhyggja og fagmennska jafnan leiðarljós í þeim störfum og segja má að þar liggi sérstaðan í starfsemi spítalans. Starfsfólk Landspítala er einstakt og er samfélaginu ómetanlegt. Því megum við sjálf ekki gleyma.
---
Spítalapúlsinn má lesa í heild sinni hér.
