Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Mikil þörf fyrir endurnýjun á skurðverkfærum

24. september 2026

Í einu fundarherbergja Landspítala við Hringbraut eru nú til sýnis tvö tonn af nýjum Aesculap-skurðverkfærum sem lækningatækjaframleiðandinn B. Braun er að kynna fyrir skurðlæknum og skurðhjúkrunarfræðingum spítalans.

Elías Þór Guðbrandsson, yfirlæknir bæklunarskurðlækninga á Landspítala, skoðar skurðverkfærin.

Um er að ræða vinnu sem hófst í mars sl. þegar teymi frá Aesculap kom í heimsókn á Landspítala. „Þau fóru yfir alla okkar helstu verkfærabakka og skoðuðu ástand, aldur og fleira. Þá kom í ljós að um 70% verkfæra okkar voru ýmist ónýt eða þyrfti að senda í viðgerð,“ segir Anna Huld Jóhannsdóttir, deildarstjóri á dauðhreinsunardeild Landspítala. Elsta verkfærið sem fannst í bakka var yfir 40 ára. 

Teymið er nú komið á spítalann í annað sinn, m.a. til að rýna samsetningu verkfæranna ofan í bökkunum. „Eru verkfæri þar sem aldrei eru notuð og við setjum vinnu í að þvo, raða og endursótthreinsa aftur og aftur?“ spyr Anna Huld. Reynsla Aesculap sé að eftir yfirferð þeirra megi fækka verkfærum í bökkum um allt að 35%. Teymið mun einnig yfirfara hvaða verkfæri er búið að hanna betri útgáfur af og skoða hvort hægt sé að staðla grunnverkfæri, á borð við skæri, pinsettur og nálahaldara, í sem flestum verkfærabökkum. Það muni einfalda lagerinn og gera auðveldara að skipta út verkfærum ef eitthvað bilar eða skemmist. 

„Þegar þau hafa unnið úr gögnunum fáum við nákvæma skýrslu um hvað við þurfum að kaupa. Við erum öll svo glöð með þessa vinnu og hlökkum öll til jólanna þegar við getum farið eftir ráðleggingum þeirra og keypt það sem þarf til að gera verkfæraástand okkar betra,“ segir Anna Huld. „Við erum einnig afar þakklát fyrir að skurðlæknarnir og skurðhjúkrunarfræðingarnir hafi gefið sér tíma til að koma og sinna þessari mikilvægu vinnu.“

Í myndbandinu er rætt við Önnu Huld og Elías Þór Guðbrandsson, yfirlækni bæklunarskurðlækninga á Landspítala.