Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Meðferðarhænur gleðja börnin

19. júní 2026

Í Brúarskóla við Dalbraut og á barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) starfa auk mennskra starfsmanna fjórar meðferðarhænur.

Fyrir rúmum tveimur árum ríkti mikil páskastemming í Brúarskóla og upp kom sú hugmynd að það væri kjörið að fá nokkra páskaunga. Starfsfólkið greip þá hugmynd á lofti og fór í að útvega útungunarvél og frjó egg. Góðhjartaður bóndi á Reykjanesi gaf skólanum átta egg og þremur vikum seinna klaktist eitt þeirra út. Lukka kom í heiminn 12. apríl 2024. Fljótt var ljóst að ekki myndu fleiri egg klekjast út og þá var farið í að útvega fleiri unga svo að Lukka yrði ekki einmana. Sami bóndi og hafði gefið eggin gaf skólanum tvo unga og svo fengust aðrir tveir frá bæ í Mosfellsdalnum. Fyrstu vikurnar voru ungarnir með í kennslustundum og í pásum fengu þeir knús frá nemendum. Síðar fluttu þær í eigið húsnæði. Um haustið var svo ljóst að einn unginn upplifði sig karlkyns og lét í sér heyra um miðjar nætur svo hann þurfti að fá nýtt heimili.

Nú eru fjórar hænur starfandi við skólann, þær Lukka, Millý, Bella og Donna. Um helgar og í fríum sinna þær skjólstæðingum BUGL sem sjá um að fóðra þær og gefa þeim umhyggju og athygli.

Þetta samstarf hefur gengið einkar vel.