Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Markverður árangur að stytta biðlista á Svefnmiðstöðinni

5. janúar 2026

Svefnmiðstöðin náði miklum framförum á síðasta ári við að vinna niður biðlista eftir meðferð við kæfisvefni. Í byrjun árs biðu 500 einstaklingar eftir meðferð og biðtímar voru mun lengri en áætlað var. Eftir markvissar aðgerðir er biðtíminn nú innan þjónustumarkmiða og hefur farið úr sjö mánuðum niður í einn.

Niðurstaðan er skýr: markviss, kerfisbundin aðgerðaráætlun og innleiðing á nýju verklagi gaf skjótan árangur. Fyrstu tölur benda líka til að meðferðarheldnin hjá þeim sem eru að hefja meðferð sé að aukast umtalsvert eða um 20% milli ára. Ef haldið er rétt á spilunum munu breytingarnar hafa varanleg áhrif á afköst og gæði þjónustunnar.

Sex lykilskref skópu árangurinn

  1. Samræmt, skriflegt verklag og þjálfun. Meðferðarsamtalið var endurskoðað af öllum í starfsmannahópnum. Með samræmdu verklagi var hægt að stytta tímann og settur var fókus á hvað skiptir mestu máli í meðferðarsamtalinu. Í þessu tilfelli er það rétt val á grímu með einstaklingnum sem hefur bein áhrif á framgang meðferðar og meðferðarheldni. Til að allir gengju í takt var verklagið æft í hlutverkaleikjum áður en það var innleitt.

  2. Markmið og aukið framboð tíma. Farið var í það að auka framboð á bókuðum tímum úr 7 tímum á dag af og til, yfir í 10 tíma á dag, alltaf, alla daga. Bókaður meðferðartími með einstaklingnum var styttur úr 45 í 30 mínútur. Bókaðir tímar í aðra þjónustu voru einnig styttir og tekin var ákvörðun um að minnka tiltekna þjónustu til að koma fleiri tímum að. Yfir visst tímabil var opnunartími lengdur.

  3. Vikulegir starfsmannafundir. Regluleg og stöðug samskipti með starfsfólkinu er lykilþáttur í að innleiða breytingar. Að verja tíma í samskipti sparar tíma í starfseminni. Breytingarnar hafa tekið á en opin, uppbyggileg gagnrýni, hreinskiptni og fagmennska er það sem hefur einkennt vinnuna.

  4. Markvissari fjareftirfylgd og nýtt þjónustuform. Skilgreint og skriflegt flæðirit var sett upp í fjareftirfylgd sem deildin sinnir. Einnig var ný og betri þjónusta innleidd þar sem markmiðið er að leysa vandamálin strax. Í þessu tilfelli var það grímumóttaka þannig að um leið og einstaklingurinn er í vandræðum kemur hann á deildina og vandamálið er leiðrétt í stað þess að teygja á ferlinu yfir síma. Með þessu er hægt að útskrifa fólk fyrr úr þjónustunni.

  5. Kæfisvefn fer ekki í frí. Þvert á fyrri hefðir um að hægja á starfseminni yfir sumartímann var gefið í. Hjúkrunarnemar komu inn og þar sem allir ferlar voru skriflegir voru þeir fljótir að tileinka sér aðferðirnar og lyftu grettistakinu með starfsfólkinu.

  6. Stöðugar umbætur. Þrátt fyrir frábæran árangur er verkefninu hvergi nærri lokið. Ná þarf árangri á fleiri stöðum og bæta þjónustuna. T.d. er verið að gera stutt fræðslumyndbönd til að undirbúa einstaklinginn betur áður en hann hefur meðferðina. Gera þarf miklar breytingar á allt of mikilli og flókinni skráningarvinnu. Nýta þarf tæknina betur og er t.d. verið að skoða hvernig fólk geti bókað og afbókað sig sjálft í tíma og þannig mætti lengi telja.