Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Málþing um útskriftir aldraðra aftur heim

5. júní 2026

Málþingið „Leiðin heim“ fór fram í lok maí á Landakoti. Þar var fjallað um útskriftir aldraðra aftur heim frá ýmsum sjónarhornum en málþingið var á vegum fagdeildar í öldrunarhjúkrun og félagsráðgjafa á Landakoti.

Vandaðar útskriftir eru mikilvægar fyrir áframhaldandi búsetu í heimahúsi. Traust til þjónustuaðila og tengingar við þá sem veita þjónustuna geta verið lykillinn að því að einstaklingar geti haldið áfram sjálfstæðri búsetu. Mjög góð þátttaka var á málþinginu en fjölmargir fagaðilar og þjónustuaðilar komu fram og kynntu lausnir sem í boði eru. Sömuleiðis var fjallað um mikilvægi þess að fá fram góðar upplýsingar um aðstæður og stuðning heima strax við innlögn, því ef þörf er á miklum breytingum getur verið heppilegt að byrja undirbúning útskriftar nánast við upphaf innlagnar.

Málþingið var vel heppnað, fullt var í salnum og um 30 manns fylgdust með í streymi. Hægt er að horfa á upptöku af málþinginu hér.