Málþing til heiðurs Ásgeiri Haraldssyni
19. maí 2026
Þann 15. maí sl. var haldið málþing í Hringsal í tilefni starfsloka Ásgeirs Haraldssonar, yfirlæknis og prófessors í barnalækningum.

Fjöldi fólks mætti til að hlýða á erindi um akademískan og klínískan feril Ásgeirs og fagleg áhrif hans en einnig fræðast um aðrar hliðar hans utan vinnu.


