Magnús Konráðsson heiðraður fyrir framþróun
13. júlí 2026
Magnús Konráðsson, sérfræðingur í skurðlækningum og sérhæfðum speglunum meltingarvegar, var heiðraður í flokknum Framþróun á ársfundi Landspítala sem fram fór í vor.

„Með framþróun er hægt að ná ýmsu,“ segir Magnús. „Það er hægt að ná hagkvæmni í rekstri, það er hægt að ná auknum gæðum í þjónustu og auknu öryggi í þjónustu. Forsendan er samstarf og fórnir og elja margra sem koma að hlutunum og að það séu til staðar einstaklingar sem hafa þekkingu, getu og þjálfun til þess að taka þátt í framfaraskrefunum.“
Úr tilnefningu: „Magnús hefur af mikilli framsýni byggt upp meltingarspeglanir á Landspítala ásamt góðu samstarfsfólki. Sérstaka athygli vekur hversu sterk starfsemin er á sviði sérhæfðra speglana, en þar býður sjúkrahúsið upp á þjónustustig sem stenst samanburð við sum mun stærri sjúkrahús erlendis. Það starf sem Magnús hefur unnið verður seint fullþakkað.“
