Líf ómetanlegur bakhjarl kvennadeildarinnar
30. desember 2025
Kvennadeild Landspítala hefur notið rausnarlegra styrkja frá Líf styrktarfélagi allt frá stofnun félagsins árið 2009. Megintilgangur Lífs er að bæta aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma. Alls hefur Líf varið hátt í 300 milljónum króna í ýmiss konar umbætur og tækjakaup fyrir skjólstæðinga og starfsfólk kvennadeildar.

Stjórn Lífs heimsótti kvennadeildina í nóvember og fékk kynningu á starfseminni frá deildarstjórum og yfirlæknum. Að sögn Kolbrúnar Pálsdóttur, yfirlæknis kvenlækninga, er ómetanlegt að hafa Líf styrktarfélag sem bakhjarl kvennadeildarinnar. „Þetta er þvílík hagsbót fyrir starfsemi deildarinnar. Fyrir þeirra tilstuðlan hefur margt verið gert til að bæta jafnt upplifun kvenna, þjónustuna og aðgengi að þjónustunni.“
Ómhermir og leghálsspeglunartæki
Kvennadeildin er í góðu samstarfi við stjórn Lífs styrktarfélags og hefur auglýst og tekið þátt í alls konar viðburðum sem félagið hefur staðið fyrir til að afla fjár fyrir deildina. „Þau hjá Lífi hafa staðið á bak við margar og stórar gjafir en þau hafa einnig fleytt okkur langt með alls konar minniháttar innkaup í gegnum árin,“ segir Kolbrún. „Okkur eru þröngar skorður settar í innkaupum en með aðstoð Lífs höfum við getað keypt alls konar kennslutæki sem hefði annars líklega ekki verið hægt að kaupa.“
Sem dæmi nefnir Kolbrún að fyrir tilstuðlan Lífs hafi kvenlækningadeild 21A keypt nýjan tækjabúnað fyrir legspeglunaraðstöðuna á göngudeildinni sem hefur gjörbreytt þeirri starfsemi. „Svo fengum við styrk til að kaupa ómhermi til að kenna læknum og læknanemum að gera ómskoðanir. Á næsta ári verður safnað fyrir færanlegum leghálsspeglunartækjum svo hægt verður að gera speglanir á einfaldari hátt.“
Aðrar deildir innan kvennadeildarinnar hafa nýverið fengið styrki frá Lífi til að kaupa m.a. Doptone tæki til að hlusta eftir fósturhjartslætti, hermisónar, göngugrind, lífsmarkamæli, mjaltavél og hvers konar kennslutæki. Þá gerði Líf meðgöngu- og sængurlegudeild 22A kleift að gera upp sjúkrastofu til minningar um ljósmóður sem lést fyrir aldur fram.
