Landspítali til samstarfs við Sahlgrenska
11. september 2026
Landspítali og Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið hafa gert með sér samkomulag um stefnumótandi samstarf. Fjölmörg tækifæri eru til sameiginlegra verkefna þar sem Svíþjóð og Ísland geta nýtt jafnt það sem heilbrigðiskerfi landanna eiga sameiginlegt og það sem greinir þau að til að efla heilbrigðisþjónustu í báðum löndum.

Boubou Hallberg, forstjóri Sahlgrenska háskólasjúkrahússins, og Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala.
Í stefnumótandi samstarfi felst að stuðla að skilvirku og fyrirsjáanlegu flæði sjúklinga, bæta nýtingu sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu og gera samræmda áætlanagerð milli stofnananna mögulega. Sjúkrahúsin stefna að því að bæta aðgengi að mjög sérhæfðri heilbrigðisþjónustu um leið og tryggð eru gæði, sjálfbærni og þau grunngildi sem opinber heilbrigðisþjónusta byggir á. Samstarfið skapar jafnframt grundvöll fyrir langtímauppbyggingu þekkingar og hæfni og styður þannig við öfluga og samþætta sérfræðiþjónustu innan norræns heilbrigðiskerfis.
Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið og Landspítali hafa um árabil átt í öflugu samstarfi á fjölmörgum sviðum, t.a.m. hefur Sahlgrenska annast líffæraígræðslur fyrir íslenska sjúklinga. Þá hafa læknar í sérnámi fengið tækifæri til að starfa þvert á löndin og sjúkrahúsin hafa átt samstarf um sjaldgæfa sjúkdóma og krabbameinslækningar.
„Samstarfið við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið hefur um langt skeið verið Landspítala og íslenskum sjúklingum afar mikilvægt. Nú víkkum við samstarfið út og opnum nýjar leiðir sem munu nýtast báðum stofnunum. Landspítali þakkar Sahlgrenska fyrir farsælt samstarf og fagnar þeim tækifærum til áframhaldandi samvinnu og sameiginlegrar þróunar sem samkomulagið skapar,“ segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala.
„Með því að dýpka það farsæla samstarf sem þegar er til staðar sköpum við ný tækifæri til að þróa heilbrigðisþjónustuna enn frekar. Við stöndum frammi fyrir mörgum sömu áskorunum og getum lært mikið hvert af öðru með samstarfi um nýsköpun, klínískar rannsóknir, innviði og fleiri svið. Samstarfið mun styrkja bæði sjúkrahúsin og hjálpa okkur að veita sjúklingum í Svíþjóð og á Íslandi enn betri þjónustu,“ segir Boubou Hallberg, forstjóri Sahlgrenska háskólasjúkrahússins.
Samstarf á fimm meginsviðum
Sjúkrahúsin hafa sammælst um að efla samstarfið á fimm sviðum:
Menntun og þjálfun
Markmiðið er að styrkja mönnun og viðhalda öflugri faglegri þekkingu með því að fjölga sameiginlega tækifærum til klínískrar starfsþjálfunar, skipulagðra starfsnámsdvala og hæfnimiðaðrar þjálfunar hjá báðum stofnunum. Með samræmingu náms- og þjálfunarleiða og formlegu fyrirkomulagi við mat og viðurkenningu á þjálfun og hæfniviðmiðum vilja sjúkrahúsin stuðla að öflugri uppbyggingu mannauðs og faglegri þróun fjölbreyttra heilbrigðisstétta.
Klínískar rannsóknir og nýsköpun
Samstarfið mun efla miðlun þekkingar milli sjúkrahúsanna og styðja enn frekar við sameiginlegan metnað þeirra til að þróa heilbrigðisþjónustu með klínískum rannsóknum og nýsköpun.
Heilbrigðisþjónusta
Landspítali og Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið hafa, ásamt Sjúkratryggingum Íslands, um langt skeið átt í samstarfi um líffæragjafir og líffæraígræðslur.
Á þeim grunni munu samstarfsaðilarnir víkka klínískt samstarf sitt, kanna möguleika á samstarfi á fleiri sviðum mjög sérhæfðrar meðferðar og auðvelda skipulagðan stuðning vegna flókinna eða sjaldgæfra sjúkdómstilvika þar sem sérþekking þvert á landamæri getur skipt máli.
Framtíðarmiðuð þróun klínísks umhverfis og innviða sjúkrahúsa
Sjúkrahúsin standa bæði frammi fyrir sambærilegum áskorunum við skipulagningu og uppbyggingu stórra nýrra sjúkrahúsbygginga. Hér á landi er nýr meðferðarkjarni á Hringbraut í byggingu og í Svíþjóð er Sahlgrenska m.a. að reisa nýjan barnaspítala og er með sérstakt fæðingarsjúkrahús á teikniborðinu. Markmið þessa samstarfssviðs er að leiða saman þekkingu og reynslu stofnananna, stuðla að sameiginlegu námi og þróa sveigjanlegt klínískt umhverfi sem mætir þörfum framtíðarinnar.
Viðbúnaður og styrkur
Landspítali og Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið munu vinna saman að því að efla viðbúnað og styrk heilbrigðisþjónustunnar gagnvart breytilegum alþjóðlegum heilbrigðisógnum og samfélagslegum áskorunum. Með samhæfðu samstarfi, miðlun þekkingar og samvinnu við innlenda og alþjóðlega samstarfsaðila stefna sjúkrahúsin að því að efla sameiginlega getu sína til að bregðast með árangursríkum hætti við þörfum heilbrigðisþjónustunnar, bæði við almennar aðstæður og þegar bregðast þarf við umfangsmeiri neyðarástandi.

