Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Landspítali og Rigshospitalet í samstarf um meðferð hjartsláttartruflana

27. mars 2026

Landspítali og Rigshospitalet í Kaupmannahöfn hafa gert með sér samstarfssamning varðandi meðferð hjartsláttartruflana og þá sér í lagi brennsluaðgerðir.

Eftirspurn eftir brennsluaðgerðum vegna hjartsláttartruflana hefur aukist verulega undanfarin ár. Brennsluaðgerðir eru orðnar mjög öflugur valkostur í meðferð algengra hjartsláttartruflana eins og gáttatifs. Þrátt fyrir talsvert aukið framboð á aðgerðum hefur biðlisti eigi að síður haldið áfram að lengjast jafnt og þétt. Það eru aðeins tveir læknar á Landspítala, Sigfús Gizurarson og Kristján Guðmundsson, sem framkvæma brennsluaðgerðir og er inngripið flókið og krefjandi.

„Þar sem við höfum einungis tvo lækna sem framkvæma þessar aðgerðir hérlendis er þessi starfsemi frekar viðkvæm,“ segir Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga. „Það sama á við um önnur sérhæfð verk á Landspítala sem fáir sérfræðilæknar framkvæma. Við þurfum að huga sérstaklega að því hvernig við styðjum við þessa tegund af starfsemi hérlendis. Það er síður en svo sjálfgefið að við getum haldið úti mjög sérhæfðum læknisfræðilegum inngripum í svona fámennu samfélagi.“

Þessi samningur á milli spítalanna tveggja mun gera það að verkum að danskir læknar munu koma hingað nokkrum sinnum á ári og vinna með læknum Landspítala og leysa þá af í fríum þegar fram líða stundir. „Þetta mun væntanlega tryggja betri samfellu í aðgerðaráætlunum okkar og hjálpa okkur að stytta biðlistana,“ segir Davíð. „Þá sjáum við fram á að okkar læknar geti farið til Kaupmannahafnar og tekið þátt í flóknum aðgerðum undir öðrum kringumstæðum og þannig bætt við sig þekkingu.“ Samningurinn býður enn fremur upp á samstarf varðandi fræðslufundi og ráðgjöf, jafnvel í beinni meðan á aðgerðum stendur, en til er búnaður til að deila lykilþáttum aðgerða í rauntíma.

Að sögn Davíðs getur samstarf sem þetta skipt þjóðina, sem er bæði fámenn og landfræðilega afskekkt, miklu máli og jafnframt verið nokkurs konar öryggisnet. „Það er sömuleiðis afar mikilvægt að leita leiða til að styðja eins og hægt er við mikilvæga en viðkvæma starfsemi.“ Að sögn Davíðs kunna að vera enn frekari angar á þessu samstarfi sem verða skoðaðir betur á næstunni.