Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Þessi frétt er meira en árs gömul

Landspítali hlaut styrk til að innleiða íslenska máltækni

4. febrúar 2025

Landspítali hefur hlotið samtals 20 milljónir króna í styrk frá Skerfi, sjóði sem styrkir verkefni sem fela í sér innleiðingu og/eða hag­nýtingu á íslenskri máltækni. Styrkurinn, sem ætti að létta á störfum starfsfólks spítalans, skiptist í þrjá hluta:

  • 14,5 milljónir fyrir samstarf með Corti í þróun á máltæknigervigreind fyrir geðsvið

  • 3,5 milljónir fyrir samstarf með Miðeind í innleiðingu á þýðingalausnum

  • 2 milljónir fyrir samstarf með KötluCode í þróun á gervigreind til að styðja við DRG skráningar

Það var menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sem hafði umsjón með útdeilingu styrkjanna. Alls voru 12 verkefni styrkt, eða 52% umsókna, um 60 milljónir króna.