Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Lærdómsrík heimsókn til Danmerkur: Nútímadauðhreinsun í nýju ljósi

28. september 2026

Ný dauðhreinsunardeild Landspítala verður ein af lykilinnviðum nýs meðferðarkjarna á Hringbraut. Til að undirbúa þá vegferð heimsótti hópur frá Landspítala nýjar dauðhreinsunardeildir við sjúkrahús í Køge og Álaborg í Danmörku.

Mads Tanggaard Okholm, verkefnastjóri dauðhreinsideildar í Álaborg, tók sjálfu af hópnum.

Í hópnum voru deildarstjórar dauðhreinsunar og skurðstofukjarna, verkefnastjórar frá Hringbrautarverkefninu og NLSH. Heimsóknin var skipulögð af ráðgjafafyrirtækinu Ramböll í Danmörku. Fyrirtækið hefur komið að hönnun og þróun nýrrar dauðhreinsunardeildar í Álaborg og veitir jafnframt ráðgjöf við hönnun og þróun dauðhreinsunardeildar í nýjum meðferðarkjarna Landspítala. 

Grundvöllur öruggrar meðferðar 

Dauðhreinsun er órjúfanlegur hluti af öruggri skurðstofustarfsemi og öruggri starfsemi bráðaspítala. Á hverjum degi fara þúsundir skurðverkfæra, bakka og annarra lækningatækja í gegnum ferla sem tryggja að búnaður sé hreinn, öruggur og tilbúinn til notkunar. Þótt starfsemin sé sjaldan áberandi í umræðunni er hún grundvöllur þess að hægt sé að veita sjúklingum örugga og árangursríka meðferð sem felur í sér einhvers konar inngrip eða skurðaðgerð. 

Samhliða uppbyggingu nýrra sjúkrahúsa á Norðurlöndunum hafa nýjar dauðhreinsunardeildir risið sem endurspegla mikla tækniþróun og breyttar kröfur til starfseminnar. Víða má finna lausnir sem byggja á sjálfvirknivæðingu, róbótatækni og sjálfvirku lagerhaldi. Á mörgum stöðum eru ferlar orðnir stafrænir frá upphafi til enda og upplýsingar flæða sjálfkrafa milli búnaðar, lagerkerfa og annarra upplýsingakerfa sjúkrahúsanna. 

Ein stærsta áskorun nýrra lausna felst einmitt í samþættingu kerfa. Þegar búnaður og hugbúnaður koma frá mörgum framleiðendum þarf að tryggja að öll kerfin tali saman á öruggan og áreiðanlegan hátt. Þar geta falist bæði tæknilegar og rekstrarlegar áskoranir, sem og tækifæri sem mikilvægt er að greina snemma í undirbúningsferlinu. 

Lærdómsríkar heimsóknir 

Heimsóknirnar voru sérstaklega lærdómsríkar þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að heyra og sjá bæði um það sem hefur gengið vel og það sem reynst hefur erfitt við innleiðingu nýrra ferla og tæknilausna. Heimsóknirnar nýtast vel við áframhaldandi vinnu við undirbúning og ákvarðanatöku vegna nýrrar dauðhreinsunardeildar Landspítala. 

Ný dauðhreinsun snýst ekki eingöngu um nýja tækni heldur fyrst og fremst um skipulag, flæði, vinnuumhverfi og samstarf ólíkra eininga. Mikill tími hefur farið í að greina aðfangaflæði, vinnuferla, hlutverk og samskipti milli deilda, enda eru skýrir ferlar og starfsumhverfi lykilþættir í árangursríkri starfsemi.  

Ný staðsetning skapar áskoranir og tækifæri 

Fyrir Landspítala er fram undan ein stærsta breyting á þessu sviði í áratugi. Starfsemi dauðhreinsunardeildar flytur frá Tunguhálsi yfir á Hringbraut og breytast þar með bæði aðstæður og skipulag. Mikilvægasta breytingin felst í aukinni nálægð við skurðstofur og aðra klíníska starfsemi. Um leið verða ákveðin verkefni færð frá skurðstofum yfir til dauðhreinsunar sem mun hafa áhrif á verkaskiptingu og verklag. 

Ný staðsetning skapar jafnframt nýjar áskoranir og tækifæri fyrir starfsfólk. Dauðhreinsunardeildin verður staðsett í kjallara nýja meðferðarkjarnans í hjarta spítalans, ólíkt núverandi starfsemi sem er í sérstöku húsnæði utan meginspítalasvæðisins. Sú breyting hefur áhrif á samgöngur, aðgengi, þjónustuflæði og daglegt starfsumhverfi og verður mikilvægt að horfa vel til þarfa starfsfólks við innleiðingu nýrrar starfsemi. 

Á næstu árum mun starfsfólki dauðhreinsunar fjölga og þörf verður fyrir fleiri sótthreinsitækna og aðra sérhæfða starfsmenn. Samhliða tæknivæðingu verður áfram lögð rík áhersla á vinnuvernd, öryggi og góða starfsaðstöðu.  

Margir þættir stýra árangri 

Heimsóknirnar til Køge og Álaborgar staðfestu að innleiðing nýrrar dauðhreinsunardeildar er umfangsmikið breytingaverkefni sem snertir starfsemi margra eininga sjúkrahússins. Reynslan frá þessum sjúkrahúsum sýnir að árangur ræðst ekki eingöngu af vali á tækjum og búnaði heldur af því hvernig tekst að samþætta nýja verkferla, upplýsingakerfi og starfsfólk í eina heild.  

Þessi reynsla mun nýtast vel við áframhaldandi undirbúning nýrrar dauðhreinsunardeildar Landspítala, þar sem fram undan eru mikilvægar ákvarðanir um skipulag, tækni, mönnun og vinnuvernd. Flutningur starfseminnar frá Tunguhálsi yfir á Hringbraut mun marka tímamót og skapa tækifæri til að byggja upp nútímalega dauðhreinsun sem styður við örugga og skilvirka þjónustu í nýjum meðferðarkjarna.