Kristín Vilborg ráðin hjúkrunardeildarstjóri á brotaendurhæfingardeild
14. ágúst 2026
Kristín Vilborg Þ. Hjaltalín hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á brotaendurhæfingardeild á Landakoti frá 1. ágúst 2026.

Kristín Vilborg hóf störf sem hjúkrunarfræðingur á Landspítala árið 2015 og starfaði þar í rúm tvö ár. Á árunum 2017–2021 starfaði hún sem hjúkrunarfræðingur hjá Lyfju. Frá maí 2021 hefur hún starfað á Hrafnistu, fyrst sem hjúkrunarfræðingur og frá maí 2022 sem aðstoðardeildarstjóri.
Kristín Vilborg lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2015. Frá útskrift hefur hún sótt fjölmörg námskeið sem tengjast hjúkrun og fagþróun, auk námskeiða á sviði stjórnunar og leiðtogahæfni.
„Á Landakoti starfar öflugt þverfaglegt teymi sem sinnir endurhæfingu aldraðra af mikilli kostgæfni og alúð. Brotaendurhæfing er mikilvægur hluti af þeirri þjónustu og það verður mitt hlutverk sem deildarstjóri að stuðla að hvetjandi og góðu vinnuumhverfi. Mitt markmið er að efla samstarf og samræmi milli deilda til að tryggja enn frekar öryggi, fagmennsku og umhyggju í þjónustu við skjólstæðinga okkar, ásamt því að styðja við faglega þróun starfsfólks. Ég hlakka mikið til að taka við þessu krefjandi hlutverki, halda áfram að veita framúrskarandi þjónustu og byggja á því öfluga starfi sem nú þegar er unnið á Landspítalanum.“
