Kristín Kristmundsdóttir ráðin hjúkrunardeildarstjóri á öryggisgeðdeild
3. júní 2026
Kristín Kristmundsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á öryggisgeðdeild Landspítala. Kristín, sem tók við starfinu í janúar síðastliðnum, hefur starfað sem aðstoðardeildarstjóri á öryggisgeðdeild undanfarin fimm ár.

Kristín lauk BS prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2017. Áður hafði hún lokið cand oecon prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1993 og MS prófi í stjórnun og stefnumótun frá sama skóla árið 2005. Kristín starfaði sem viðskiptafræðingur í um 20 ár, bæði sem sérfræðingur og stjórnandi áður en hún sneri sér að hjúkrun. Hún hefur starfað í geðþjónustu Landspítala frá árinu 2016.
„Spennandi tímar eru framundan í öryggis- og réttargeðþjónustunni sem er að stækka og breytast samfara aukinni þjónustuþörf. Ég hlakka mjög til að halda áfram að vinna með frábæru samstarfsfólki mínu að áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar þar sem gæði og öryggi er í öndvegi.“
