Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Jóhanna ráðin deildarstjóri á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild

29. október 2026

Jóhanna G. Þórisdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri á nýja réttar-og öryggisgeðdeild sem mun sinna sérhæfðri meðferð og endurhæfingu einstaklinga með alvarlegan og flókinn geðrænan vanda. Stefnt er að því að deildin opni í mars 2027.

Jóhanna er hjúkrunarfræðingur og hefur starfað nær eingöngu við geðhjúkrun frá árinu 2003, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Hún er reynslumikill stjórnandi og hefur síðustu 10 ár unnið sem deildarstjóri á geðgjörgæslu og þar áður sem aðstoðardeildarstjóri á réttargeðdeild.

Jóhanna lauk meistaraprófi í lýðheilsuvísindum frá the Nordic School of Public Health í Gautaborg árið 2014 og diplómanámi í geðhjúkrun frá Háskóla Íslands árið 2017.

„Það er ótrúlega spennandi að fá að taka þátt í því að byggja upp nýja deild frá grunni og ég hlakka mikið til þess að takast á við þetta verkefni. Ég mun leggja mig alla fram til þess að skapa deild þar sem áhersla verður lögð á faglega þróun og starfsumhverfi sem einkennist af samvinnu, öryggi og metnaði fyrir góðri þjónustu. Ég vil að sjúklingar mínir finni fyrir öryggi, trausti og virðingu.“