Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Jóhann Róbertsson heiðraður fyrir fagmennsku

27. júlí 2026

Jóhann Róbertsson, sérfræðingur í handaskurðlækningum, var heiðraður í flokknum Fagmennska á ársfundi Landspítala í maí.

Jóhann hefur starfað á spítalanum í 26 ár. Hann segir að í sínum huga snúist fagmennska um að vera með ákveðna undirstöðu eða bakhjarl sem geri manni kleift að vinna verkin sín. Spítalastarfsemin sé teymisvinna og allt byggist á góðu samstarfsfólki. „Það leysir enginn maður vandamálin einn.“

Úr tilnefningu: „Jóhann er framúrskarandi á sínu fagsviði. Hann hefur einstaklega góða nærveru og er ávallt reiðubúinn að hlusta og veita ráðgjöf. Þolinmæði og jákvæðni einkenna samskipti hans. Hann er sterk fyrirmynd, bæði faglega og persónulega.“