Jafnvægið fundið á þingi norrænna svæfinga- og gjörgæslulækna
18. júní 2026
Þing norrænna svæfinga- og gjörgæslulækna (Scandinavian Society of Anaesthesiology and Intensive Care Medicine, SSAI) fór fram í Hörpu þann 10.–12. júní sl.

Þingið er haldið annað hvert ár og ferðast milli Norðurlandanna, þannig að það er haldið á Íslandi á tíu ára fresti. Skipulagning þingsins var í höndum Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands og stóð undirbúningur yfir í um fimm ár.
Þátttakendur voru rúmlega 920 talsins frá 50 löndum. Á dagskrá voru 42 málstofur og 13 vinnubúðir, meðal annars um ómskoðun, loftvegameðferð barna og fullorðinna, sem og ísetningu hjarta- og lungnadælu. Viðfangsefnin spönnuðu öll helstu svið og undirsérgreinar svæfinga- og gjörgæslulækninga. Þá voru kynnt yfir 120 vísindaágrip á þinginu.
Þema þingsins var „Finnum jafnvægið“ og endurspeglaðist það í fjölmörgum umræðuefnum. T.d. var fjallað um jafnvægi milli starfs og einkalífs, val á meðferðarúrræðum, ábyrga og markvissa notkun gervigreindar í læknisfræði og jafnvægi milli klínískra starfa, kennslu og rannsókna svo fátt eitt sé nefnt.


