Iðunn dregur úr skráningarálagi
13. ágúst 2026
Á öldrunardeild L-3 á Landakoti er nýtt smáforrit í prófun, Iðunn, sem gerir starfsfólki kleift að skrá viðkvæm gögn beint í sjúkraskrá á öruggan hátt en forritið er tengt við SÖGU-kerfið. Þetta eykur gæði þjónustu og stuðlar að betri yfirsýn yfir heilsufar skjólstæðinga.

Iðunn virkar á þá leið að starfsfólk hakar við verkþætti sem hafa verið framkvæmdir, skráir mælingar, hefur yfirlit yfir dagplan skjólstæðinga og getur nálgast áhættumat þeirra fyrir byltum, þrýstingssárum, vannæringu og óráði. Prófunin er liður í þróun á starfsmannaappi Heilsugáttar sem heilbrigðis- og upplýsingatæknideild Landspítala er með í vinnslu.
Meiri tími til samveru með sjúklingum
Skráningarálag og vanskráning er því miður þekkt vandamál í hjúkrun á Íslandi. Nýlegar íslenskar rannsóknir sýna að hjúkrunarfræðingar eyða óhóflega miklum vinnutíma við tölvur á kostnað beinnar þjónustu við sjúklinga. Það hefur neikvæð áhrif á gæði, öryggi, skilvirkni og starfsánægju.
Iðunn hefur þegar verið innleidd á nokkrum hjúkrunarheimilum og í heimahjúkrun. Þegar gagnsemi Iðunnar á hjúkrunarheimilum var könnuð kom í ljós umtalsvert styttri skráningartími í Sögu og meiri tími sem fagfólk hefur fyrir samveru með sjúklingi. Upplýsingaflæði milli vakta jókst og upplýsingar urðu nákvæmari og rekjanlegri. Með prófun á Iðunni á Landakoti er verið að kanna hvort samskonar árangur náist þar.
Í myndbandinu er rætt við Björk Rósinkrans Bing, sérhæfðan starfsmann á L-3 á Landakoti.
