Iðjuþjálfun alla daga ársins: forsenda öruggra útskrifta
27. október 2026
Í dag er alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar.

Bráðaþjónusta Landspítala í Fossvogi hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár. Sjúklingar eru í auknum mæli eldri, með flóknari heilsufarsvanda og þurfa oft, samhliða læknisfræðilegri meðferð, endurhæfingu og félagslegan stuðning. Á sama tíma er áhersla lögð á að stytta innlagnir og tryggja að sjúklingar geti sem fyrst snúið aftur heim eða í viðeigandi þjónustuúrræði. Til að það sé hægt þarf að meta ekki einungis sjúkdóma og einkenni heldur einnig hvernig einstaklingnum gengur að sinna daglegu lífi. Þar gegna iðjuþjálfar lykilhlutverki.
Iðjuþjálfar meta færni sjúklinga til að framkvæma daglegar athafnir, svo sem að klæðast, annast persónulega umhirðu, útbúa mat, sinna heimilishaldi og komast leiðar sinnar á öruggan hátt. Þeir meta jafnframt vitræna færni og getu til að takast á við þær kröfur sem bíða sjúklings eftir útskrift. Niðurstöður matsins veita mikilvægar upplýsingar um hvort sjúklingur sé tilbúinn til að útskrifast og hvort hann þurfi til dæmis hjálpartæki, heimahjúkrun, félagslega þjónustu eða frekari endurhæfingu.
Aðkoma iðjuþjálfa bætir upplifun sjúklinga
Íhlutun iðjuþjálfa í bráðaþjónustu getur haft afgerandi áhrif á gæði þjónustunnar. Með markvissu mati snemma í þjónustuferlinu er hægt að greina hindranir fyrir öruggri útskrift, koma af stað viðeigandi úrræðum og draga úr töfum. Þetta bætir ekki aðeins upplifun sjúklings heldur stuðlar einnig að skilvirkara sjúklingaflæði og betri nýtingu legurýma.
Reynsla Landspítala styður þessa nálgun. Í tilraunaverkefni þar sem iðjuþjálfar sinntu þjónustu á þeim hátíðisdögum sem féllu á virka daga kom fram skýr ávinningur. Sjúklingar fengu íhlutun iðjuþjálfunar án þess að þurfa að bíða fram yfir langar helgar eða næsta virka dag. Þannig varð þjónustan samfelldari og auðveldara að taka tímabærar ákvarðanir um útskrift og eftirfylgd. Verkefnið staðfesti að þörfin fyrir iðjuþjálfun í bráðaþjónustunni er til staðar alla daga ársins og að aðgengi að þjónustunni getur skipt verulegu máli fyrir bæði sjúklinga og starfsemi Landspítala.
Iðjuþjálfar skimi alla sjúklinga á bráðamatsdeild
Þessi reynsla endurspeglast nú í skipulagningu nýrrar bráðamatsdeildar í Fossvogi. Þar er gert ráð fyrir aukinni mönnun og þar er iðjuþjálfun veitt frá kl. 8 til 20 á virkum dögum og frá kl. 9 til 15 um helgar og á hátíðisdögum, sem er mikilvæg nýjung í þjónustu iðjuþjálfa á spítalanum. Stefnt er að því að iðjuþjálfi skimi alla sjúklinga sem leggjast inn á bráðamatsdeildina og framkvæmi faglegt mat á færni, þátttöku og þörfum þeirra sem þarfnast íhlutunar. Með því verður iðjuþjálfun samþættur hluti af grunnferli þjónustunnar frá upphafi, fremur en þjónusta sem er veitt eftir beiðni.
Þegar þjónustan er aðgengileg alla daga ársins og iðjuþjálfar eru virkir þátttakendur í þverfaglegu teymi skapast betri forsendur fyrir öruggum útskriftum, auknu sjálfstæði sjúklinga og skilvirkari nýtingu takmarkaðra auðlinda heilbrigðiskerfisins. Bráðamatsdeildin er skýrt dæmi um þessa framtíðarsýn þar sem hæfni iðjuþjálfa er nýtt markvisst frá fyrsta degi til hagsbóta fyrir sjúklinga, starfsfólk og Landspítala í heild og því fögnum við.
