Hvað verður um blóðið?
10. ágúst 2026
Árlega eru 4 milljónir rannsókna unnar í blóðmeinafræði og klínískri lífefnafræði.

Í meðfylgjandi myndbandi er blóðprufu fylgt á ferðalagi hennar um rannsóknarstofu Landspítala og sýnt hvað gerist frá því að sýnið berst þar til niðurstöður eru tilbúnar.
Það leynist ansi margt á bak við eina litla blóðprufu.
Rætt er við Gyðu Hrönn Einarsdóttur, deildarstjóra á rannsóknakjarna, þar sem eru teknar um 860 blóðprufur á hverjum degi. Á deildinni starfa 157 manns, flestir þeirra eru lífeindafræðingar en þar starfa einnig náttúrufræðingar og ritarar.
