Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Hope4Kids - Átaksverkefni um líknarmeðferð barna

18. maí 2026

Landspítalinn tekur þátt í verkefninu Hope4Kids – Holistic Oncologic Palliative Care for Europe’s Kids – sem hefur það að markmiði að efla og samræma líknarmeðferð barna um alla Evrópu fyrir öll börn sem lifa með lífsógnandi eða lífsskerðandi sjúkdóma.

Hope4Kids

Víða um Evrópu lifa börn með alvarlega, flókna eða sjaldgæfa langvinna sjúkdóma sem hafa veruleg áhrif á lífsgæði þeirra og geta í mörgum tilvikum minnkað lífslíkur.

Líknarmeðferð barna er ekki einungis bundin við umönnun við lok lífs – hún er virk, heildræn nálgun sem hægt er að veita frá því að greining liggur fyrir, óháð tegund eða stigi sjúkdóms og samhliða sértækri eða lífslengjandi meðferð.

Markmið líknarmeðferðar barna er að fyrirbyggja og lina þjáningu með árangursríkri meðhöndlun verkja og annarra erfiðra einkenna, auk þess að veita sálrænan, félagslegan og andlegan stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.

Líknarþjónusta fyrir börn í Evrópu einkennist í dag af verulegri mismunun á aðgengi og þjónustan er oft innleidd seint eða ekki nægilega vel í almennri barnalækningaþjónustu. Þar af leiðir upplifa börn, fjölskyldur þeirra og aðrir umönnunaraðilar, oft ósamræmi í þjónustu.

Hope4Kids bregst við þessum áskorunum með heildstæðri og samræmdri nálgun. Helstu afurðir verkefnisins fela í sér kortlagningu á líknarmeðferð barna í Evrópu, þróun samræmdra og gagnreyndra verkferla í líknarmeðferð barna, innleiðingu og mati á fjórum forverkefnum (e. pilot programs) á meira en 17 rannsóknarstöðum og þróun kennslu- og fræðsluefnis fyrir heilbrigðisstarfsfólk, foreldra, aðra umönnunaraðila og kennara.

Hope4Kids mun einnig byggja upp evrópskt tengslanet fagfólks á sviði líknarmeðferðar barna og vinna með öðrum evrópskum verkefnum.

Hope4Kids verkefnið stendur yfir í 4 ár og er samhæft af Princess Máxima Center for pediatric oncology í Hollandi. Verkefnið byggir á samstarfi meira en 50 samstarfsaðila og yfir 70 stofnana frá 23 Evrópulöndum. Með þessu samstarfi tekst Hope4Kids á við mismunun á aðgengi að líknarmeðferð fyrir börn, gæðum þjónustunnar og samþættingu hennar í heilbrigðiskerfinu. Að lokum mun verkefnið tryggja að hvert barn og fjölskylda þess hafi aðgengi að hágæða líknarmeðferð um leið og við á, óháð búsetu.

Fulltrúar verkefnisins frá Landspítalanum eru Oddný Kristinsdóttir sérfræðingur í barnahjúkrun, Ásta Bjarney Pétursdóttir, sérfræðingur í líknarhjúkrun og Jóhanna Hildur Jónsdóttir, sérfræðilæknir á Líknardeild og Heru ásamt krabbameinsteymi Barnaspítala Hringssins.

Verkefnið er fjármagnað af Evrópusambandinu.