Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Hlaut öndvegisstyrk frá Rannís

4. mars 2026

Hans Tómas Björnsson, yfirlæknir við erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala og prófessor í færsluvísindum og barnalækningum við Háskóla Íslands, fékk nýverið ríflega 145 milljóna króna styrk til þriggja ára frá Rannsóknasjóði Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís). Öndvegisstyrkir eru veittir til viðamikilla verkefna sem þykja skara fram úr á sínu sviði og hafa alþjóðlega skírskotun.

Hans Tómas Björnsson ásamt teymi sínu.

Verkefni Hans Tómasar nefnist „Kortlagning á sértækum kæliferli í spendýrafrumum“. Beðinn um að útskýra nánar hvað í því felst, tekur hann dæmi um börn sem verða fyrir súrefnisskorti við fæðingu. Þau eru þá gjarnan sett í væga kælingu til að virkja ákveðinn feril í frumum líkamans, sem kallast á ensku „mild hypothermia response“. Þegar ferillinn fer af stað er kveikt á þáttum sem draga úr frumudauða og líkur á varanlegum heilaskaða minnka.

Rannsóknarstofa Hans Tómasar hefur verið að kortleggja ferilinn, finna stýriþættina sem hrinda ferlinu af stað og er markmiðið að geta virkjað ferilinn án kælingar en nýlega hefur verið stofnað sprotafyrirtækið KALDUR therapeutics til að færa þessar uppgötvanir til sjúklinga. Stofnendur eru Hans Tómas Björnsson og Martin Ingi Sigurðsson og eiga bæði Landspítali og Háskóli Íslands hlut í því félagi.