Hjúkrunarfræðingar og ljósmóðir kynntu umbótaverkefni
1. júní 2026
Í vor fór fram kynning á umbótaverkefnum í Hringsal. Þar kynntu sjö hjúkrunarfræðingar og ein ljósmóðir, öll í sérfræðinámi í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði, umbótaverkefni sín og útkomu þeirra.

Verkefnin voru unnin samkvæmt aðferðafræði Quality Improvement (QI) undir handleiðslu Ameliu Samuel á gæðadeild Landspítala. Vinnan hófst í september á síðasta ári og að baki verkefnunum liggur umfangsmikil og metnaðarfull vinna. Viðfangsefnin voru fjölbreytt, mikilvæg fyrir sjúklinga Landspítala og hvert öðru áhugaverðara.
Amelia var fyrst á mælendaskrá og fjallaði um Umbótaskóla sérnáms. Í erindi sínu lagði hún áherslu á að markmið námsins væri að efla þekkingu, færni og viðhorf þátttakenda til að geta innleitt markvissar, smáar umbætur í klínísku starfi með einföldu og skipulögðu verklagi. Þá kynnti hún stuttlega Model for Improvement, sem nemendur styðjast við í umbótaverkefnum sínum.
Kynnt voru eftirfarandi verkefni:
Hilda Friðfinnsdóttir – Ómskoðun ljósmæðra í fæðingu
Verkefnið beindist að því að innleiða notkun ljósmæðra á ómskoðun í fæðingu við ákveðnar aðstæður og auka öryggi ljósmæðra við framkvæmd hennar. Eftir einstaklingskennslu og fræðslumyndband jókst bæði áhugi og öryggi ljósmæðra við notkun ómskoðunar í fæðingum.
Þórey Rósa Einarsdóttir – Bréf til sjúklings við útskrift úr bráðri eftirfylgd
Verkefnið sneri að því að auka hlutfall sjúklinga sem fá skriflegar útskriftarleiðbeiningar við lok bráðrar eftirfylgdar. Hlutfallið jókst jafnt og þétt á innleiðingartímabilinu og var komið í 100% í lok verkefnisins.
Hrafnhildur Benediktsdóttir – Innleiðing á Bröset-matslistanum á deild 33A
Verkefnið fólst í innleiðingu reglulegrar notkunar á Bröset-matslistanum á deild 33A. Innleiðingin leiddi til marktækrar aukningar á framkvæmd áhættumats, sem stuðlar að því að stigmögnun sé greind fyrr. Með snemmíhlutun má draga úr ofbeldisatvikum og þvingun í meðferð, auk þess sem öryggi skjólstæðinga og starfsfólks eykst.
Birna Rut Aðalsteinsdóttir og Elín Gróa Guðjónsdóttir – Núll aðskilnaður
Markmið verkefnisins var að fjölga börnum sem sinnt er hjá móður, húð við húð, eftir fæðingu í stað þess að flytja þau á Vökudeild. Hlutfall barna sem sinnt var hjá móður jókst úr 18% í tæplega 70%.
Orri Jökulsson – Early extubation after cardiac surgery
Verkefnið beindist að því að stytta tíma sjúklinga í öndunarvél eftir einfaldar hjartaskurðaðgerðir á gjörgæslu Landspítala. Upphaflega var meðaltíminn 153 mínútur. Með þremur PDSA-lotum tókst að stytta tímann um 45,5 mínútur, þó að markmiðið um 90 mínútna meðaltíma hafi ekki náðst.
Sólrún Dögg Árnadóttir – Ökkla- og upphandleggsþrýstingur mældur eftir slagæðaaðgerðir á neðri útlimum
Markmið verkefnisins var að auka hlutfall sjúklinga sem fá mældan og skráðan ökkla- og upphandleggsþrýsting samkvæmt verklagi. Að loknum tveimur PDSA-lotum var hlutfall þeirra sem útskrifuðust með slíka mælingu og skráningu komið yfir 75%.
Sólveig Gylfadóttir – Gæðaverkefni í tengslum við undirbúning og eftirlit á einangrunarstofum
Verkefnið sneri að því að bæta undirbúning og eftirlit á einangrunarstofum með innleiðingu vasaspjalds. Eftir innleiðinguna styttist undirbúningstími einangrunarherbergis um helming, fleiri nauðsynlegir hlutir samkvæmt gæðaskjali voru til staðar og starfsfólk taldi að öryggi bæði sjúklinga og starfsfólks hefði aukist.
Í heildina þóttu kynningarnar vel heppnaðar og frammistaða þátttakenda til fyrirmyndar. Verkefnin sýndu vel hvernig markviss umbóta aðferðafræði getur skilað raunverulegum breytingum í klínísku starfi.








