Hjördís B. Tryggvadóttir heiðruð fyrir umhyggju
3. júlí 2026
Hjördís B. Tryggvadóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma, fékk heiðrun í flokki umhyggju á ársfundi Landspítala í maí síðastliðnum.

„Á geðsviði erum við starfsfólkið tækið,“ segir Hjördís. „Við erum tólið. Það eru engin röntgentæki eða segulómun eða hvað þetta allt saman heitir sem segja okkur hvernig við eigum að halda áfram. Það er bara við.”
Úr tilnefningu: „Hjördís sýnir umhyggju í öllu sínu starfi. Hún sinnir sjúklingum af fagmennsku og hlýju og smitar þessi gildi út frá sér til samstarfsfólks. Hjördís er lykilstarfsmaður á geð- og fíkniþjónustu og hefur ítrekað veitt dýrmætan stuðning í kjölfar alvarlegra atvika.”
