Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Hjartað í lyfjaflæði Landspítala

1. október 2026

Í sjúkrahúsapóteki Landspítala fer fram umfangsmikil starfsemi sem tryggir öruggt aðgengi sjúklinga að lyfjum þvert á spítalann.

Starfsemin er hluti af þeirri ósýnilegu innviðaþjónustu sem styður daglega við klíníska starfsemi spítalans og gegnir lykilhlutverki í öruggri lyfjameðferð sjúklinga. Sjúkrahúsapótekið er hluti af Lyfjaþjónustu Landspítala og tilheyrir sviði Klínískrar rannsóknar- og stoðþjónustu.  

Í sjúkrahúsapótekinu starfar metnaðarfullur og samheldinn hópur lyfjafræðinga, lyfjatækna og sérhæfðs starfsfólks. Þar fara fram innkaup lyfja, birgðahald, dreifing lyfja til deilda og ráðgjöf varðandi lyfjaval, auk fjölmargra verkefna sem tengjast gæðum og öryggi lyfja. 

Sex milljónir lyfjaeininga á ári 

Starfsemin þjónar öllum legu-, dag- og göngudeildum Landspítala og tryggir að rétt lyf séu til staðar og á réttum tíma. Daglega eru afgreiddar um 16.500 lyfjaeiningar  og um 60 pantanir til deilda spítalans, auk þess sem  lyf eru skömmtuð fyrir 27 legudeildir. Árið 2025 afgreiddi sjúkrahúsapótekið alls 6 milljónir lyfjaeininga í 21 þúsund pöntunum. Vaxandi hluti  starfseminnar er birgðastýring lyfja á um 30 deildum Landspítala, sem  er gott dæmi um vel heppnaða tilfærslu verkefna á milli heilbrigðisstétta. Umfang starfseminnar hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum samhliða fjölgun sjúklinga, auknu framboði sérhæfðra lyfja og sívaxandi kröfum um öryggi og rekjanleika. 

Lyfjaframboð og Lyfjalistinn 

Lyfjaframboð er ein af grunnforsendum öruggrar heilbrigðisþjónustu. Starfsfólk sjúkrahúsapóteksins vinnur náið með klínísku starfsfólki spítalans að því að leysa áskoranir sem tengjast lyfjaskorti og innleiðingu nýrra lyfja. Jafnframt ber sjúkrahúsapótekið ábyrgð á daglegri umsjón Lyfjalista Landspítala, sem er eitt mikilvægasta verkfæri spítalans til að stuðla að öruggri, samræmdri og hagkvæmri lyfjanotkun. Lyfjalistinn veitir starfsfólki leiðbeiningar um val lyfja og styður við klíníska ákvarðanatöku í daglegu starfi. 

Horft til meðferðarkjarnans 

Undanfarin ár hefur verið lögð aukin áhersla á umbætur til að mæta auknum kröfum um afköst og öryggi ásamt því að auka starfsánægu starfsfólks. Þetta hefur  einkum  verið gert með því að einfalda og staðla verklag, nýta stafrænar lausnir og mæla árangur umbótanna. Lyfjaþjónusta mun halda áfram að þróast hratt á næstu árum. Við flutning í meðferðarkjarna verður sjálfvirkni aukin með nýjum tækjabúnaði og stigin stór skref í  nýtingu hug- og tækjabúnaðar til að auka þjónustustig og efla lyfjaöryggi með innleiðingu lokaðs lyfjaferlis.