Helga Sigrún Gunnarsdóttir ráðin deildarstjóri í meinafræði
6. mars 2026
Helga Sigrún Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra í meinafræði við Landspítala.

Helga Sigrún er lífeindafræðingur að mennt og lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands vorið 2016. Hún hefur undanfarin ár starfað sem gæðastjóri meinafræðideildar og hefur þar öðlast víðtæka reynslu af gæðastarfi, innra eftirliti og þróun ferla innan deildarinnar.
„Það er ótrúlega spennandi verkefni sem ég hef fengið, að leiða það frábæra starf sem unnið er á meinafræðideild og á sér yfir aldargamla sögu. Þjónusta meinafræðideildar er mikilvægur þáttur í heilbrigðiskerfi landsins og hefur starfsemin aukist ár frá ári. Fjöldi spennandi tækifæra er framundan til að bæta og styrkja starfsemi deildarinnar og hlakka ég til að takast á við þær áskoranir sem þeim fylgja.“
