Heiðursvísindamaður og Ungur vísindamaður Landspítala
13. febrúar 2026
Óskað er eftir tilnefningum á heiðursvísindamanni og ungum vísindamanni Landspítala árið 2026. Tilkynnt verður um valið á ársfundi Landspítala í maí en ekki á Vísindum á vordögum eins og áður.

Tilnefningar eru sendar inn til Vísindaráðs með því að nota Researchweb.
Tilnefning á heiðursvísindamanni Landspítala
Skilafrestur rennur út 9. apríl 2026. Tilnefna má þá sem hafa aðalstarf sitt á Landspítala og hafa ekki áður verið heiðraðir með titlinum.
Vísindaráð Landspítala hvetur þá sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna á spítalanum til að senda inn tilnefningar. Heimilt er að tilnefna sjálfan sig og er sérstaklega hvatt til þess. Við valið er lagt mat á vísindaferil viðkomandi og árangur vísindarannsókna hans eða hennar ásamt frumleika og sjálfstæði í vísindarannsóknum. Einkum er horft til fjölda birtra vísindagreina í virtum erlendum vísindatímaritum og fjölda tilvísana í þær, fjölda greina þar sem viðkomandi er fyrsti eða síðasti höfundur og fjölda tilvísana í þær greinar, öflunar stórra styrkja hérlendis og erlendis og þátttöku og árangurs í alþjóðlegu samstarfi. Einnig er litið til framlags til eflingar vísinda og vísindamenningar innan Landspítala. Er það m.a. metið út frá grósku vísindastarfs viðkomandi innan spítalans, greinafjölda sem byggja á rannsóknum vísindamannsins innan spítalans og fjölda tilvitnana í þær greinar sem og fjölda útskrifaðra meistara- og doktorsnema.
Tilnefningum skal fylgja ferilskrá og ritalisti viðkomandi vísindamanns ásamt staðfestum og hreinsuðum Google Scholar tengli. Einnig skal fylgja rökstuðningur fyrir því af hverju ætti að heiðra tilnefndan sem heiðursvísindamann Landspítala 2026.
Rætt við Karl Andersen, formann vísindaráðs Landspítala, um hvað felst í nafnbótunum heiðursvísindamaður og ungur vísindamaður Landspítala.
Tilnefning á ungum vísindamanni Landspítala
Skilafrestur rennur út 9. apríl 2026
Ungir vísindamenn Landspítala eru hvattir til að óska eftir tilnefningu sem ungur vísindamaður Landspítala 2026.
Skilyrði fyrir vali:
Viðkomandi er starfsmaður á Landspítala
Háskólaprófi var lokið á síðustu 7 árum
Tilnefningum skal fylgja ferilskrá og ritalisti ásamt staðfestum og hreinsuðum Google Scholar tengli. Einnig skal fylgja rökstuðningur fyrir því af hverju ætti að heiðra tilnefndan sem ungan vísindamann Landspítala 2026
Vinsamlegast hafið samband við Sigríði Bergþórsdóttur (sigridube@landspitali.is) ef einhverjar spurningar vakna.
