Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heiðruðu frumkvöðul í öldrunarhjúkrun

29. desember 2025

Málþing til heiðurs Ingibjörgu Hjaltadóttur, sérfræðingi í hjúkrun og prófessor í öldrunarhjúkrun við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, var haldið á Landakoti um miðjan nóvember. Ingibjörg þykir mikill frumkvöðull í öldrunarhjúkrun á Íslandi og starfaði við fagið á Landspítala í 40 ár áður en hún lét af störfum fyrir um ári síðan.

Aðspurð segir Ingibjörg að það sem standi helst upp úr þegar horft er til baka, sé allt það góða fólk með áhuga á velferð eldra fólks sem hún hefur unnið með. Einnig þyki henni einstakt hversu mörgum góðum verkefnum hún fékk að vinna að innan Landspítala - verkefnum sem nýttust ekki aðeins á spítalanum heldur einnig á hjúkrunarheimilum og heilsugæslum. Sem dæmi um þessi verkefni nefnir Ingibjörg fræðslu fyrir ófaglært fólk sem starfi við umönnun og námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja efla þekkingu sína á öldrunarhjúkrun.

Góð mæting var á málþingið og segir Ingibjörg það hafa verið ótrúlega tilfinningu að hlýða á erindin sem tileinkuð voru henni. „Ég er ótrúlega þakklát fyrir allt þetta góða fólk sem hefur unnið með mér og mætti á málþingið, suma hverja hafði ég ekki séð lengi. Mér hlýnaði í hjartanu yfir þessum fallegu orðum á málþinginu en ég vil að fólk viti að allt sem ég var að gera var ekki hægt nema fyrir það góða og áhugasama fólk sem vann með mér,“ segir Ingibjörg. „Maður gerir ekkert svona einn.“

Hægt er að horfa á upptöku frá málþinginu hér.